154. löggjafarþing — 45. fundur,  7. des. 2023.

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu.

238. mál
[11:46]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið og ítreka það sem ég sagði hér áðan: Við þurfum meiri mælitæki á árangur og PISA er bara eitt mælitæki. En því miður þá virðist það vera það eina sem við eigum almennilega. Ég vil líka taka undir það sem fram hefur komið í umræðunum og gagnrýni margra, að það sé nauðsynlegt að skólarnir sjálfir eða sveitarfélögin fái að sjá PISA þannig að þau hafi einhvern mælikvarða á stöðuna hjá sér. Þar af leiðandi er ég svolítið hlynnt samræmdum prófum eða einhvers konar prófaaðferð sem er samræmd yfir landið allt.

En ég þakka hv. þingmanni fyrir að koma hér inn á leikskólastigið því að ég er algerlega sannfærð um að það sé mikilvægasta skólastigið okkar. Þegar við horfum á vandamálið í PISA, sem snýr fyrst og fremst að lesskilningi barna, þá vitum við að það tengist auðvitað íslenskunni, málkunnáttu og skilningi á íslenskri tungu. Þess vegna hlýtur það að vera algjört forgangsverkefni hjá skólayfirvöldum, sem í þessu tilfelli eru sveitarfélögin, bæði fyrir leikskóla og grunnskóla, að tryggja að þeir sem starfa með börnum á máltökualdri hafi góð tök á íslenskri tungu. Og þegar ég heyri svo sérfræðinga; talmeinafræðinga og aðra sérfræðinga, tala um það hvernig við getum skimað börn og erum að skima börn og hversu mikilvægt það er að bregðast við og vinna með þær niðurstöður og það geti svo auðveldað börnunum lestrarkunnáttuna eða lestrarnámið síðar meir, þá finnst mér það núna líta þannig út að það sé alveg augljóst að við höfum ekki verið að nýta þessa þekkingu sem þó er einmitt byggð á vísindum og þekkingu okkar færasta fólks. Og þá segi ég: Hvernig getur það brugðist með þessum hætti þegar við erum að skima börn varðandi málþroska þeirra og vitum hvaða aðferðum á að beita en niðurstaðan er því miður ekki betri en þetta?