Miðstöð menntunar og skólaþjónustu.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessar spurningar eða þetta andsvar. Ég ætla að vera sammála henni að því leytinu til að ég held að leikskólar séu ofboðslega mikilvægt tæki hvað varðar jafnrétti kynjanna. Ég þakka þeim sem á undan okkur gengu og börðust einmitt fyrir því. Ég held að það og fæðingarorlof sem skiptist jafnt milli beggja foreldra sé stærsta tækifæri okkar jafnréttisbaráttunni. Þá þarf líka að vera hægt að treysta á þessa innviði og því miður er staðan alls ekki sú að barnafjölskyldur á Íslandi geti treyst á það að fá leikskólapláss. Það er óásættanlegt. En þetta er verkefni sveitarfélaganna. Ég væri svo gjarnan til í stundum að hoppa inn í sveitarstjórnir og hjálpa þeim við að leysa þetta verkefni. Þetta verkefni er auðvitað mjög stórt hérna í Reykjavík en það er stórt víða í stærri sveitarfélögum vegna þess að það hefur verið erfitt að manna leikskólana.
Svo kemur hv. þingmaður inn á ákveðnar tilraunir sem verið er að gera til að mynda í Kópavogi, ég held að Hafnarfjörður sé að horfa á það sama. Það er nefnilega ofboðslega áhugaverð umræða og ég hvet hv. þingmann til að kynna sér það betur og hvaðan það sprettur af því að við vorum áðan að tala um sérfræðinga í börnunum okkar og þá sérfræðinga í kennslufræðum og leikskólakennslufræðum, og það hefur verið hrópað úr þeirri átt að viðvera barna í leikskólum sé of mikil. Þarna er verið að leita leiða til að tryggja gæðaþjónustu fyrir börn í ákveðinn tíma en ákveðna gæslu þegar honum lýkur. Þeir foreldrar sem eiga þess kost, sem betur fer eru það ansi margir sem eiga þess kost, að stilla vinnutímann sinn þannig af að barnið njóti meiri samvista við foreldra — ef það er hægt þá er það frábært. En sveitarfélagið er ekki að segja sig (Forseti hringir.) frá þjónustu við þá sem ekki geta það og styðja sérstaklega við tekjulága foreldra. (Forseti hringir.) Þannig að ég held að það verkefni sem Kópavogsbær er að setja upp geti verið til algjörrar fyrirmyndar og ég fagna bara því framtaki að loksins stígi (Forseti hringir.) einhver fram og leiti leiða til að takast á við þau vandamál (Forseti hringir.) sem hafa verið uppi í leikskólakerfinu okkar. ( DagH: … Ekkert annað.)
(Forseti (OH): Ég vil minna hv. þingmenn á að virða ræðutímann.)