Miðstöð menntunar og skólaþjónustu.
Virðulegur forseti. Það frumvarp sem hér er til 3. umræðu, frumvarp til laga um Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, er um margt gott frumvarp og mikilvægt og ég og flokkur minn styðjum það í heild. Það er þó ekki fullkomið frumvarp á nokkurn hátt og það eru atriði sem við lögðum fram breytingartillögu um við 2. umræðu sem fengu ekki hljómgrunn, þar á meðal um vísindaráðgjafarnefnd á sviði menntamála. Fyrirmyndin var ráðgjafarnefnd í lögum um Menntamálastofnun sem var skipuð hagsmunaaðilum. Hér er mikilvægt að breyta um kúrs og hætta að taka tillit til hagsmunaaðila en byggja þetta algerlega á vísindum. Ég er sammála hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur, formanni allsherjar- og menntamálanefndar, um að það sé rétt að hafa líka samnorrænt samstarf á grundvelli vísinda á sviði menntamála. En við verðum líka að hafa okkar eigið. Íslenskt skólakerfi er vissulega norrænt en það er fyrst og fremst íslenskt og við verðum að fara út í heim og leita eftir niðurstöðum nýjustu rannsókna og því sem er að gerast þar á sviði fræðanna. Við verðum að horfa til þess að við höfum verið á rangri braut. Þetta snýst ekki um fjármuni í þetta skiptið eins og alltaf er. Það er grein sem ég er með hér af visir.is, „Ólæsi er enn mikið á Íslandi“, frá árinu 2004. Þar segir, með leyfi forseta:
„Starfshópur á vegum menntamálaráðuneytisins komst að þeirri niðurstöðu fyrir tveimur árum“ — árið 2002 sem sagt — „ að líklega ættu um fimmtán þúsund Íslendingar á fullorðinsaldri við umtalsverða lestrarörðugleika að stríða.“
Þar segir einnig, með leyfi forseta:
„Gera má ráð fyrir að lítil lestrarfærni hái um tuttugu þúsund manns til viðbótar. Þannig að alls eru þetta um 35.000 manns. Þetta vandamál er fyrst að verða viðurkennt á Íslandi á síðari árum en hingað til hefur almennt verið talið að bókaþjóðin öll fluglæs. Kannanir á lestrarfærni barna á fimmtán ára aldri hafa hins vegar bent til þess að enginn munur sé á Íslendingum og öðrum Norðurlandaþjóðum.“
Þetta var árið 2004 um ástandið 2002, það er 21 ár síðan. Hvað gerðist frá þessum tíma? Ekki neitt, ekki neitt. Niðurstöður PISA í ár staðfesta enn og aftur að ástandið er hrikalegt. Þessi könnun mælir hæfni 15 ára nemenda í lesskilningi, læsi á náttúruvísindi og læsi á stærðfræði. Við lækkum enn meira. Við erum langt fyrir neðan önnur Norðurlönd. Það eru örfá ríki fyrir neðan okkur, ég held að við séum í fimmta eða sjötta sæti af öllum ríkjunum. Það kemur fram í niðurstöðum könnunarinnar að nemendur sem eiga foreldra í lakari félags- og efnahagslegri stöðu koma verr út í könnuninni, þvert á þátttökulönd. Meiri aukning er í ójöfnuði í námsárangri á Íslandi yfir tíma og einkum í lesskilningi, þ.e. við erum raunverulega að bregðast þeim sem eru í slökustu stöðunni, slökustu félagslegu og efnahagslegu stöðunni.
En það er ekki bara það. Við erum líka að bregðast afburðanemendunum og þar er munurinn enn þá meiri. Þar er Ísland yfirleitt með 2% hlutfall nemenda sem ná afburðahæfni á þessum sviðum en Norðurlöndin 8%. Norðurlöndin eru fjórfalt betri og þetta á við um grunnfærni í lesskilningi, stærðfræði og náttúruvísindum. Við erum að tala um grunnhæfni hérna.
Það kom fram í umræðunni hjá hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur að við þyrftum fleiri mælitæki. Við þurfum ekkert endilega fleiri mælitæki hvað þetta varðar. Að sjálfsögðu væri gott að hafa fleiri mælitæki varðandi samræmd próf og annað slíkt, að athuga nemendur svo við getum haft áskoranir miðað við færni en ef það er kalt úti þá vitum við að það er kalt úti. Við þurfum ekki hitamæli til að segja okkur að það sé kalt úti. Þessar niðurstöður eru ekki með nokkrum hætti óvæntar. Ég get vísað til viðtals við Jón Pétur Zimsen, aðstoðarskólastjóra Réttarholtsskóla, sem er minn gamli ungdómsskóli, og hann er spurður hvort tíðindin komi honum í opna skjöldu, með leyfi forseta:
„Niðurstöðurnar koma mér bara akkúrat ekkert á óvart – ekki neitt. Þetta er algjörlega það sem ég bjóst við. Þetta var í farvatninu og verður áfram.“
Það er núna sem við verðum að gera eitthvað í málum. Það er núna, ekki seinna. Það er núna. Það sem er undir virðist vera það, og ég vil meina það, og það má saka mig um það að ég sé eitthvað einstrengingslegur, að við erum að beita rangri aðferðafræði við lestrarkennslu. Ég veit að í byrjendalæsi er líka farið inn á bókstafa- og hljóðaaðferðina en það er bara ekki gert nógu markvisst og eingöngu í byrjun. Þú verður að læra stafina og ég skal segja af hverju. Það er grein hér frá 2015, „Ný lestraraðferð skilar verri lestri“. Þar kemur fram, með leyfi forseta:
„Byrjendalæsi, kennsluaðferð sem þróuð var hjá Háskólanum á Akureyri og kennd er í 80 grunnskólum á Íslandi, leiðir ekki til betri árangurs nemenda á samræmdum könnunarprófum.“
Með leyfi forseta ætla ég að halda hér áfram með greinina:
„Þetta kemur fram í samantekt Menntamálastofnunar sem DV hefur undir höndum. Munurinn á einkunnum nemenda sem hafa lært að lesa með aðferðinni og nemendum sem ekki lærðu að lesa með aðferðinni er einn heill í einkunn á samræmdum prófum í fjórða bekk. Það er, nemendur sem lærðu að lesa með aðferðinni eru verr staddir en þeir sem það gerðu ekki.“
Í áðurnefndu viðtali við Jón Pétur Zimsen vill hann meina að krakkar núna séu að tapa meira en heilu skólaári nú á milli kannana. Við höldum bara áfram að fara niður og ef við breytum ekki um aðferðafræði og förum ekki í grunninn á þessu munum við halda áfram að fara niður, svo einfalt er það.
Flokkur minn hefur verið með tillögu hér til þingsályktunar um að taka upp bókstafa- og hljóðaaðferðina í aðalnámskrá grunnskóla og þar er komið að stjórnkerfi menntamála. Það frumvarp sem hér er til samþykktar í 3. umræðu er frá Alþingi. Við erum að setja lög um það hvernig við eigum að styðja skólana. Stjórnkerfi menntamála í landinu er í lögum. Það er fjallað um þetta í löggjöf, lögum um leikskóla, lögum um grunnskóla og lögum um framhaldsskóla. Þar er fjallað um aðalnámskrá og skólanámskrá og aðalnámskrá á að leggja grunninn um það hvernig þetta á allt saman að vera. Ég hef lesið þessar aðalnámskrár. Ég get lesið mér til gagns og ég las aðalnámskrá framhaldsskóla sem allir ættu að gera hér inni. Ég las kaflann um læsi og ég botnaði nákvæmlega ekkert í honum, ekki neitt. Ég er búinn að lesa nokkuð mikið um ævina og ég tel mig geta skilið þann texta sem ég les. Ég skildi ekkert í honum, ekki neitt. Þetta eru hálfinnihaldslaus plögg, allt saman, aðalnámskrár skólanna, almennar yfirlýsingar um hitt og þetta o.s.frv.
Svo veit ég líka að skólanámskrárnar — ég heyrði á fundi menntamálanefndar að þar var menntaskóli sem sagði að þeir væru ekki búnir að breyta sinni skólanámskrá úr fjögurra ára námi yfir í þriggja ára nám. Ég mun vera með skriflega fyrirspurn um það hvernig eftirlitið er og hversu margir skólar nota skólanámskrár sem eiga að vera í leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla. Það er stjórnkerfi á þessu en þetta er stjórnlaust. Stjórnkerfið er ekki að virka, svo það sé algerlega á hreinu. Það er ekki að virka. Þetta er í grunninn miðstýrt kerfi sem byggir á aðalnámskrá, síðan er skólanámskrá o.s.frv. Það eru lög til um þetta. Það er bara ekki verið að fara eftir þessu. Þar komum við að einu sem var ákaflega áhugavert í viðtali við nefndan Jón Pétur Zimsen, aðstoðarskólastjóra Réttarholtsskóla:
„Spurður um orsakir þessa nefnir hann að umbúðanám, eins og hann kýs að kalla það, hafi færst í aukana.“
Með leyfi forseta langar mig að lesa hér aðeins upp úr þessu:
„Það er nám sem lítur vel út á pappírunum, en innihaldið er ekkert. Það er ríkjandi alltof víða og hjálpar ekki til. En það bitnar síðan mest á þeim sem standa höllustum fæti. Bitnar mest á þeim sem hafa slakasta félagslega, fjárhagslega bakgrunninn, þeim sem fá minnstu hjálpina heima. Þar sem skólinn á að vera jöfnunartæki — þar bregst skólinn algjörlega.“
Það sem virðist vera, og ég sé það í mínu kjördæmi, er að það eru allt einhverjir hagsmunir hingað og þangað sem ráða för. Fremstu vísindi ráða ekki för. Það er bara ekki þannig. Og af hverju höfum við ekki tekið á þessu síðan 2004? Það eru einhverjir hagsmunir úti í samfélaginu sem koma í veg fyrir það, gamla íslenska sérhagsmunastjórnunin og tregðulögmálið. Það er endalaust þessi hræðsla við að þora að stjórna menntamálum í landinu með þeim stjórntækjum sem eru í lögum, með aðalnámskrá sem fer síðan inn í skólanámskrána. Þetta er ekki eitthvað gegn kennurum, eitthvað svoleiðis, það er bara ekki þannig.
Maður sér það meira að segja í frumvarpi til laga um Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, ef við skoðum verkefnin í 4. gr., ef við skoðum bara orðalagið. Í fyrri lögum var t.d. fjallað um innleiðingu. Nei, nú er þetta að styðja við, efla, samhæfa menntun, byggja upp og halda utan um, styðja við innleiðingu o.s.frv. Það er ekki það að stofnunin eigi að sjá um innleiðingu, nei, það á að styðja við hana og sé einhvers staðar í kerfinu einhver kennari eða einhver sem er óánægður, þá bara hrekkur allt í kút. Já, það er kannski þannig, nei, ég ætla ekki að kjósa þig þá, vinurinn. Þetta er alveg með ólíkindum. Maður sér það meira að segja í þessu plaggi hérna.
Það verður að vera agi í herbúðunum hvað þetta varðar og það er kominn tími til þess núna að við tökum af skarið og tökum góða krísustjórnun á þetta. Þegar við getum staðið saman, eins og þegar eru náttúruhamfarir hérna eins og á Reykjanesskaga, þá stöndum við öll saman og við tökum á þessu máli, gerum það sem rétt er. Það stendur algjörlega skrifað fyrir framan okkur hvað er rétt og hvað er rangt í þessu máli. Það er að beita fremstu vísindum og ekkert annað í þessu, það er það sem virkar.
Það er líka mjög mikilvægt að viðurkenna mistök. Ég get tekið dæmi um mistök. Svíþjóð, stærst Norðurlanda, forysturíki í velferðarmálum og menntamálum, eða var það a.m.k. á sínum tíma, hefur viðurkennt mistök. Menntamálaráðherra Svíþjóðar er búinn að viðurkenna mistök í skólakerfi Svíþjóðar, sem voru hver? Jú, of mikil skjánotkun. Menntamálaráðherra, ég man nú ekki nafnið á henni, hefur bara sagt það hreinlega að það hafi verið mistök að innleiða skjái í alla skóla. Svíar eru núna að rúlla þessu til baka og ætla að setja milljarða króna árlega núna í það að hætta þessari skjánotkun. UNESCO-skýrsla síðastliðið vor um skjánotkun sagði það að kennarinn, „instructor“ eigi að vera „centralt“ — afsakið að ég tali ekki nógu góða íslensku hér — eigi að vera miðlægur í öllu námi, ekki nota skjáina. Ég hef talað við lækni um þetta sem segir: Haldið skjáunum sem lengst frá börnunum, svo lengi sem þið getið. Þannig er nú það. Það eru þessar rannsóknir í Svíþjóð og hjá UNESCO sem við eigum að fara eftir og innleiða.
Við eigum líka að taka utan um verkefnið Kveikjum neistann í Vestmannaeyjum, sem byggir á hverju? Fremstu kenningum fræðimanna á þessu sviði, mörgum kenningum settum saman í kokteil, Csikszentmihalyi, Ericsson og fleiri, áskorun miðað við færni, ástríðuhvöt, bókstafa- og hljóðaaðferðin, aldrei að ofgera nemandanum, aldrei nokkurn tímann, láta hann finna áhugasvið sitt, valdefla hann. Það var skemmtileg grein á visir.is í dag eða gær um að það er komin aukaafurð út úr því rannsóknarverkefni, það er efling vináttu. Krakkarnir eru komnir með meiri tengingar við aðra krakka í efri bekkjum, miklu meiri tengsl, út af sjálfstraustinu sennilega. Og svo við tölum nú um mælingar þá var þar gerð mæling á því eftir annan bekk, próf sem var útbúið sem heitir Læs, sem sýndi að 80% af nemendum gátu lesið eftir annan bekk. Uppi á fastalandinu eins og Vestmannaeyingar kalla það, eru það um 50%, 52–53%. Þar er ekki miðað við hraðlestrarprófið. Í leiðbeiningum Menntamálastofnunar um það er barnið vinsamlegast beðið um, og ég hef skrifað grein um þetta, að lesa eins hratt og það getur í tvær mínútur. Mestu kvíðaáhrif sem þetta hefur á barnið í skólanum.
Ég spurði Heikki Lyytinen — sem Hermundur Sigmundsson hefur fjallað um, sá sem stendur að verkefninu í Vestmannaeyjum, prófessor í Þrándheimi með 130 vísindagreinar. Hann hefur verið með eineltismál í Háskóla Íslands út af þessu, ég hef aldrei nokkurn tímann áður heyrt hvernig talað er um þann einstakling, persónu hans, það er algjörlega til háborinnar skammar. Hann er búinn að berjast í þessum málum í 22 ár. Greinin sem ég var að lesa áðan á Vísi frá 2004, um ástandið 2002, er 21 árs. Hermundur fékk Heikki Lyytinen, fremsta sérfræðing Finna og sérstakan ráðgjafa UNESCO í læsismálum, á málþing og ég spurði hann um hraðlestur. Hvað þýðir það? Hann sagði: Það þýðir ekki neitt, það þýðir bara að þú lest mikið. Þú hleypur hratt ef þú hleypur mikið. Hermundur fékk líka Stanislas Dehaene, helsta ráðgjafa Frakklandsstjórnar og formann vísindaráðs menntamálaráðuneytisins þar, hingað til lands og hann hélt fyrirlestur. Í lok fyrirlestrar varaði hann við ákveðnum hlutum sem ætti alls ekki gera við barnið. (Forseti hringir.) Það væri að láta barnið fara að finna orð í texta hingað og þangað. Ég fór og skoðaði Byrjendalæsi og jú, (Forseti hringir.) það er orðasúpa. Krakkinn á að reyna finna orð í einhverri orðasúpu. Þar er stafasúpa líka. (Forseti hringir.) Við verðum að breyta um aðferðafræði varðandi lestur. Svo einfalt er það. (Forseti hringir.) Það er búið að finna upp hjólið fyrir Ísland og það var í Vestmannaeyjum. (Forseti hringir.) Þetta er gömul aðferðafræði sem heitir gagn og gaman.
(Forseti (OH): Enn vill forseti minna hv. þingmann á að virða ræðutíma.)