154. löggjafarþing — 45. fundur,  7. des. 2023.

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu.

238. mál
[12:10]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Í aðalnámskrá grunnskóla er að finna þessa efnisgrein, með leyfi forseta:

„Í hugtakinu læsi felst einkum tvennt, lestur og ritun. Hér er valin sú leið að fjalla einkum um lestur en minnt er á þetta samband lestrar og ritunar. Í traustu læsi felst m.a. sú hæfni að geta ráðið í letur, skilið og túlkað það sem texti hefur að geyma, lært af því og geta miðlað þekkingu sinni til viðmælanda eða lesanda.“

Ef hv. þingmaður skilur þetta ekki þá veit ég ekki af hverju ég ætti að taka ráðleggingum hans um nokkuð annað sem hann les, afsakið. Ég átta mig heldur ekki á því hvernig stendur á breytingartillögunni hjá hv. þingmanni. Það er nú svo að það er alltaf hægt að leita til vísindasamfélagsins. Ég veit ekki af hverju það þarf að skipa einhverja sérstaka nefnd, vísindaráðgjafarnefnd, til að sinna því hlutverki af því að vísindin eru nú aðeins útbreiddari en svo að það sé alltaf hægt skella í einhverjar nefndir hingað og þangað. Þær virka yfirleitt til ákveðinnar samþjöppunar á valdi o.s.frv. Það er til fullt af öðrum útskýringum á því að staðan er eins og hún er í dag heldur en bara að það séu mistök í byrjendalæsi eða eitthvað því um líkt. Vandinn er flóknari heldur en að það sé hægt að segja bara: Við verðum að fara í hljóðaaðferðina, og búið. Eins fín aðferð og það er þá gengur hún einfaldlega ekki fyrir alla. Fólk glímir við ýmiss konar lestrarörðugleika og það þarf að gera hlutina á fjölbreyttari hátt. Það er ýmislegt svoleiðis. Og ef við eigum að fara að ákveða það í lögum hvað sé best að gera þá held ég að við séum, afsakið, að fara einhverja forræðishyggjuslóð sem ég alla vega hef engan áhuga á.