154. löggjafarþing — 45. fundur,  7. des. 2023.

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu.

238. mál
[12:12]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið en það sem hann las upp úr aðalnámskrá grunnskóla var afleiðing af því að geta lesið. Ef þú getur lesið þá þarftu að hafa skilning á því, geta lesið hratt eða á ákveðnum hraða o.s.frv. Við erum að tala hér um það hvernig barn lærir að lesa. Ég skal segja þér sögu. Ég var svolítið mikið í Rússlandi af ákveðnum ástæðum og Úkraínu á sínum tíma og ég fór að reyna að læra rússneska stafrófið. Ég skora á hv. þingmann að prófa það. Það fyrsta sem þarf að gera er að átta sig á kyrillíska stafrófinu, hver hljómur hvers stafs er. Það er grundvallaratriði. Ef þú nærð því ekki þá nærðu ekki neinu. Stafrófið er allt öðruvísi en hið latneska sem við notum. Þú verður að kunna hljóð hvers einasta tákns, það er bara þannig, bókstafahljóð. Og varðandi stofnanavæðinguna, að byggja á vísindum, þá var ráðgjafarnefnd í lögum um Menntamálastofnun. Það voru ekki vísindamenn sem voru þar, það voru hagsmunaaðilar. Við erum bara að tala um hér að hafa lagagrein, stofnanavæða það að það verði vísindaráð á sviði menntamála, ekki tengt neinum hagsmunum, bara að það gefi ráðgjöf til ráðherrans og hinnar nýju stofnunar. Svo einfalt er það. Þetta eru heilmikil vísindi, menntavísindi, uppeldisfræði og taugasálfræði, og ég hef haft mikla ánægju af því að kynna mér þetta nánar, t.d. að fara á fyrirlestur með Stanislas Dehaene sem sagði: Það er bara ákveðin stöð í heilanum sem virkjast þegar þú lærir að lesa. Hann sagði að mikilvægt væri að fara í gegnum það þannig að byrja frá eind til heildar. Það er mjög mikilvægt að gera það. Það breytir því ekki að niðurstöður PISA sýna að við höfum verið á rangri braut. Við þurfum bara að viðurkenna það og breyta um kúrs. Svo einfalt er það og ef það verður einhver svekktur í leiðinni þá verður hann bara svekktur. Mér er alveg sama um það. Ég er ekki kosinn hér til þess að hafa ekki skoðun á þessu. (Forseti hringir.) Og ég skal segja annað í því — fyrirgefið, ég er búinn með tímann minn.