154. löggjafarþing — 45. fundur,  7. des. 2023.

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu.

238. mál
[12:14]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Já, ég get vísað pínulítið í persónulega reynslu. Konan mín hefur stundað rannsóknir á lesblindu út frá einmitt rannsóknum á heilanum, ekki eins og lesblindurannsóknir voru, þegar var einhver konsensus eða samhljómur um að þetta væri eitthvert hljóðvandamál, heldur að það væri líka sjónvandamál og það var rosalega erfitt að koma rannsóknum inn í lesblindusamfélagið um sjónræna hluta vandans í lesblindunni. Það var algjör afneitun á því að það gæti verið nokkuð annað en hljóðvandamál. Þannig að ég bara bið hv. þingmann um að hafa smávíðsýni í þessu því að vísindin eru aðeins að þróast í þessum málum, hafa verið að gera það á undanförnum árum og vandinn er stærri en svo að það sé hægt bara að garga ofan af björgum: Hljóð, hljóð, hljóð. Það eru líka sjónræn vandamál í lestri eins og Dehaene, sem hv. þingmaður vitnaði í, segir líka. Og hraðlestur þar, það er einmitt ekki það sem hv. þingmaður vitnaði í, ég hef áminnt hv. þingmann um þetta áður í samfélagsumræðunni, hann sleppir ákveðnum hlutum úr leiðbeiningum Menntamálastofnunar um það hvernig á að leggja fyrir hraðaprófin. Samt heldur hann áfram með rangar tilvitnanir í rauninni þannig að þetta er pínu óþolandi umræða. Við þurfum að hugsa um heildina og hún snýst ekki bara um það að lesa hratt heldur líka vel. Það er fyrirskipunin um hraðaprófin. Og hraðaprófin eru ekkert alfa og omega þess, þetta er vísbending, þetta er einn hluti af öllu ferlinu sem fólk þarf að fara í gegnum til að reyna að finna hvar viðkomandi nemandi á við örðugleika að stríða vegna lesturs. Þetta er flóknara.