Miðstöð menntunar og skólaþjónustu.
Herra forseti. Ég verð að viðurkenna, úr því að við erum farin að tala um lesblindu hérna, að ég hef ekki talað um lesblindu í ræðum mínum hér, bara svo það liggi algerlega fyrir. (BLG: … lestrarkennslu.) Lesblinda er lesblinda. Við erum að tala hér um leshæfni, grunnskilning, grunnlesskilning. Það er það sem PISA-könnunin fjallar um. Þetta er ekki könnun um lesblindu. Lesblinda er alvarlegt vandamál. Það er enginn að tala um það. Þetta gerist allt í heilanum, hvort sem við erum með lesblindu eða hvað sem er, ADHD. Þegar ég stend hér er ákveðin heilastarfsemi sem fer fram og ég vona að það geri það líka hjá hv. þingmanni. Svo einfalt er það. En það breytir því ekki að ég skrifaði grein um þetta og ég er búinn að lesa leiðbeiningar Menntamálastofnunar oftar en mig langar til og þar segir: Kæri lesandi, vinsamlega lestu hratt í tvær mínútur. Það bara gerir það, svo einfalt er það. Þetta er mjög mikið kvíðavandamál hjá börnum. Lestur snýst um skilning. Þú verður að geta skilið það sem þú lest, það er þannig. Og ég vona að maka hv. þingmanns gangi bara vel í sínum rannsóknum og vona að þær séu mjög mikilvægar og ég vona að það gangi vel í því og ég tel að rannsóknir á lesskilningi séu bara mikilvægar í samfélaginu. Við getum líka farið að að tala um ADHD og athyglisbrest. Ég vona að íslenskir vísindamenn fari að rannsaka það. Það er 4,9% í Noregi en 15% hér. Fremsti félagsfræðingur Noregs hefur kallað það kollektíf svik gagnvart börnum. Við getum kannski farið að athuga rannsóknir á því, en við erum ekki að tala um það hér. Við erum að tala um þetta frumvarp hérna í tengslum við PISA-könnunina.