154. löggjafarþing — 45. fundur, 7. des. 2023.
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu.
238. mál
Forseti. Þessi breytingartillaga var líka lögð fram í 2. umræðu. Þar voru greidd atkvæði um hana og henni hafnað. Ég veit eiginlega ekki af hverju þessi tillaga er komin fram aftur, (Gripið fram í.) allt í einu bara. Niðurstöður PISA komu inn á milli. Er það útskýring? Nei, mér finnst það ekki nægilega útskýring því að þessi breytingartillaga er bara ekkert svo rosalega góð.