Miðstöð menntunar og skólaþjónustu.
Forseti. Aðeins að klára hérna til að hafa allt á hreinu. Þegar verið er að leggja fyrir hraðaprófin, þessi sem er alltaf verið að kvarta undan, þá eru ákveðnar leiðbeiningar um hvernig eigi að gera það. Í andsvörum áðan var fullyrt að leiðbeiningarnar væru: Kæri lesandi, þú átt að lesa þetta eins hratt og þú getur í við tvær mínútur. En eins og ég hef bent hv. þm. Eyjólfi Ármannssyni á oftar en einu sinni er textinn, fyrirlögnin, fyrirmælin sem kennarar lesa nákvæmlega:
„Hér sérðu textablað, þú átt að lesa þennan texta eins hratt og vel og þú getur í tvær mínútur. Ég mun taka tímann á meðan þú lest. Skilur þú hvað þú átt að gera? Ertu tilbúin/n?“
Og vel — lykilatriði þarna. Þetta er ekki bara hraðlestrarpróf með öllum þeim göllum sem þeim fylgja, og svo sem kostum líka, þetta er líka gæðalestrarpróf. Það skiptir máli hvernig er farið með hlutina hérna, að hafa þá rétta.
Ég er fyrrverandi starfsmaður Námsmatsstofnunar og Menntamálastofnunar. Ég vann þarna áður en ég fór á þing og sinnti ákveðnum verkefnum í forritun og upplýsingamiðlun og þess háttar. Ég vann t.d. í innleiðingu á einkunnafyrirkomulagi þegar var verið að breyta yfir í A, B, C o.s.frv. Þá sá maður dálítið á fólkinu sem var að reyna að koma breytingunni á hvað var að gerast á bak við tjöldin. Af hverju var þetta svona erfitt? Ástæðan fyrir því er í rauninni mjög einföld og miðað við þá reynslu er hún, að því er ég tel, jafnvel ein af stærstu ástæðunum fyrir því að staðan í PISA-prófunum er eins og hún er. Það er ábyrgðarleysi, það er ákveðið ábyrgðarleysi í gangi í innleiðingunni.
Aðalnámskráin og markmiðin og ýmislegt svoleiðis eru unnin samkvæmt ráðleggingum góðra vísinda að mjög miklu leyti og við vitum alveg hvernig vísindin eru, þau byggja sífellt ofan á nýrri þekkingu, betri þekkingu, að afla sér og svara spurningum hingað og þangað. Þannig að við erum að vinna í mannlegu umhverfi þar sem breytileikinn er mikill. Það er ekki hægt að setja bara eina stefnu, ríkisstefnuna, fyrir alla. Við höfum prófað það líka og það virkaði heldur ekki.
Þegar nýja aðalnámskráin var sett og þær breytingar að færa einkunnakerfið yfir í A, B, C o.s.frv. og setja hæfniviðmiðin þá bara gleymdist að fylgja því eftir með innleiðingu. Það tók enginn ábyrgð á því að stefnan sem var sett færi alla leið inn í kennslustofuna. Hugsunin var sú að setja stefnuna og svo ættu skólastofnanir og sveitarfélög og þess háttar, þeir sem væru faglegu aðilarnir í menntakerfinu, að taka þetta að sér og innleiða í hverjum skóla fyrir sig. Þeir áttu að hafa dálítið mikla stjórn á því hvernig útfærslan í hverjum skóla eða hverju sveitarfélagi yrði til þess að ná markmiðum aðalnámskrár og hvernig ætti þá að tryggja að hver nemandi myndi ná þeirri hæfni sem er kveðið á um í aðalnámskrá, en þau hæfniviðmið sem þar eru eru mjög vítt orðuð, eðlilega. Fagaðilunum, kennurunum t.d. og skólayfirvöldum, var gefinn mjög víður rammi til að vinna innan og til að haga sínum störfum samkvæmt bestu vísindum að þeirra mati. Það er eins og gengur og gerist. Það sem gerðist hins vegar ekki var þessi faglega innleiðing. Skólayfirvöld og kennarar á hverjum stað voru einfaldlega upptekin við að sinna nemendum dagsdaglega og höfðu ekki tíma til að fara og segja: Heyrðu, hvernig getum við pælt í þessu? Hvernig eigum við að breyta þessu? Hvernig eigum við að skipuleggja þetta? Hvernig eigum við að huga að nýju námsefni fyrir hitt og þetta? Eftir þetta sex ára innleiðingarferli eða eitthvað svoleiðis stóðu þau einfaldlega eftir með bara: Við erum ekki búin að gera neitt. Þið sögðuð okkur ekkert hvernig við ættum að gera þetta. Sama hvernig var spurt, sum sveitarfélög eða skólayfirvöld voru virkari en önnur að senda inn spurningar, þá komu bara engin svör, alla vega ekki nægilega skýr svör, nema bara: Þið eigið að gera þetta. Fram og til baka og engin bar ábyrgð.
Þetta er vandinn, bara gegnumgangandi í öllu sem ég sé hérna á þingi, það er ábyrgðarleysi. Þetta er vandinn þegar það er ákveðin valddreifing í gangi. Ég er hlynntur valddreifingu en í valddreifingu þarf alltaf að passa að það sé einhver sem ber ábyrgð á því að klára verkefnið, að það sé ekki þannig að það sé einhver einn sem ræður öllu alltaf, einhver einráður, heldur að það sé þá eitthvað til staðar til að klára innleiðinguna sem er ákveðinn í þeirri stefnu sem er þá sett hérna, eða annars staðar, aðallega hérna. Stefna stjórnvalda er síðan annað og er vissulega oft borin á borð Alþingis til staðfestingar eða samþykktar: Er þetta eitthvað sem Alþingi telur að sé vert að setja í þingsályktun eða er nóg fyrir stjórnvöld að hafa þetta bara í fjármálaáætluninni sjálfri sem hún leggur fram hvað varðar markmið og þess háttar, sem er vissulega líka samþykkt þingsályktun þingsins?
Þetta ábyrgðarleysi er að mínu mati ástæðan fyrir því að lítið sem ekkert hefur gerst sem hefði þurft að gerast á undanförnum áratugum í menntamálum. Það er búið að rífa í sundur gamla menntamálaráðuneytið, út af ýmsum ástæðum, góðum og slæmum ástæðum, sem var einhvern veginn ekki hægt að laga nema með því að rífa það í sundur. Að einhverju leyti smitaðist Menntamálastofnun kannski af þessum vandamálum sem gerir það að verkum að við þurfum að rífa Menntamálastofnun í sundur eða stroka í rauninni út nafnið framan af henni og skipta um og setja annað nafn. Þetta er ákveðið kennitöluflakk. Það er ekkert rosalega mikið sem breytist frá því sem núna er Menntamálastofnun yfir í það sem þetta fyrirkomulag á að verða. Það er smá minna stjórnsýsluapparat, sem er bara fínt, stjórnsýslan á heima í ráðuneytinu. Einhver verkefni færast þarna yfir og vonandi kemur þá aðeins meiri og skýrari ábyrgð á því hver á að sjá um innleiðingu á stefnu í menntamálum og passa upp á gæðastjórnun í menntamálum.
Það var alltaf þannig að Menntamálastofnun átti að sjá um ytra eftirlit, ytra gæðaeftirlit, koma að skólunum og skoða hvernig þeir væru að passa upp á að þeir myndu ná árangrinum sem var skilgreindur í aðalnámskrá. En eins og kemur fram í skýrslu um niðurstöður PISA náðist varla að heimsækja hvern skóla einu sinni á þeim tíma sem þetta verkefni var í Menntamálastofnun, sem er fjárveitingarvandamál, það er þjónustuþarfarvandamál. Þarna þarf að sinna gæðaeftirliti til að við sjáum ef það koma upp einhver atriði sem eru ekki að ganga eins og þau ættu að ganga, eins og við viljum að þau virki. En til þess þurfum við einfaldlega að fjármagna að það sé hægt. Það er ekki hægt að segja bara að það eigi að gera þetta svona og horfa svo bara í hina áttina og þykjast ekki neitt vita og segja ekki neitt og heyra ekki neitt þegar það eru síðan neyðarköll þaðan: Hvernig eigum við að gera þetta? Finnið út úr því, við erum að gera eitthvað annað. Fáum við einhvern pening til að finna út úr þessu? Nei, ekki séns.
Þetta er vandinn þegar allt kemur til alls. Það að vera með byrjendalæsi eða hljóð eitthvað eða Kveikjum neistann og alla þessa merkimiða — skóli án aðgreiningar, guð minn góður, það var einhvern veginn svona PR-afritun frá Bandaríkjunum. Þau fóru í gang með það sem heitir, með leyfi forseta, „No child left behind“, ekkert barn skilið eftir. Þá er gjörsamlega ómögulegt að vera á móti þeirri stefnu. Ef þú segir: Heyrðu, þetta er ekki nógu gott, þá ertu náttúrlega spurður: Ha? Viltu skilja börn eftir? Nei, það virkar ekki þannig. Þó að stefnan heiti „ekkert barn skilið eftir“ eða „skóli án aðgreiningar“ þýðir það ekki að innihald og efni þeirrar stefnu sé að ekkert barn sé skilið eftir eða að það sé í raun og veru skóli án aðgreiningar. Það er í alvörunni skóli með aðgreiningu núna þrátt fyrir að það sé í gangi einhver stefna sem heitir skóli án aðgreiningar. Það er bara þannig og það er óþolandi að þurfa að horfa upp á að það sé einhvern veginn veifað framan í mann einhverjum merkimiðum sem segja annað þegar það sem er á bak við er bara ekki það sem nafnið á merkimiðunum segir. Þetta er bara mjög klassískur pólitískur útúrsnúningur sem er algerlega óþolandi.
Það sem er líka að gerast og við þurfum að horfa dálítið til er, eins og kom fram þegar ég var að lesa aðeins í aðalnámskránni, að það eru aðrir miðlar að ryðja sér til rúms varðandi afþreyingu og nám og ýmislegt svoleiðis. Það er hljóðefni, það eru myndbönd, það eru gagnvirkir leikir sem taka þá ákveðinn tíma frá nemendum sem þýðir að nemendur voru áður bara með texta en núna eru þeir með texta, hljóð, myndefni, gagnvirka leiki o.s.frv. En þeir eru bara prófaðir úr texta. Að sjálfsögðu gengur þeim verr með texta en áður, auðvitað, þeir eru miklu meira að sinna námi í gegnum annars konar miðla. Erum við að skoða færni þeirra á þeim miðlum? Nei, við erum ekki að því. Væntanlega er færni þeirra á öðrum miðlum mun meiri en hún var áður. Ég lærði að handskrifa rosalega mikið, það var rosalega mikið lagt upp úr því að handskrifa heilan helling, handskrifa stíla og ég veit ekki hvað og hvað. Það fauk út um gluggann þegar tölvurnar fóru að ryðja sér til rúms. Þá þurfti ég að læra vélritun. Maður hefur varla snert penna síðan þá nema í einhverju hallæri, einhverju krafsi sem maður nær niður. Jú, vissulega er nauðsynlegt að geta hripað niður einhver orð en ekki nærri því í sama umfangi og var fyrir 40 árum síðan eða hvenær sem það var. Þá þurftirðu að vera góður í handritun. Það er ekki hæfileiki sem við horfum mikið til núna.
Hvernig erum við þá að horfa á hæfileikana við vinnslu á texta og gerð texta, ritun og læsi, í þessu umhverfi þar sem miðlun upplýsinga er á miklu fjölbreyttari hátt heldur en hún var? Hversu mikið verður samfélagið orðið deiling upplýsinga á hljóðrænan og myndrænan hátt í staðinn fyrir með texta? Verður texti aukaatriði? Mér finnst það alltaf meira og meira. Þegar ég leita að upplýsingum um eitthvað á netinu þá er mér alltaf beint á einhver YouTube-myndbönd, sem mér finnst óþolandi af því að ég þarf að horfa á allt myndbandið og reyna að finna þar það sem ég er að reyna að greina og mig langar að vita, á meðan ég vil lesa texta en aðrir sem eru orðnir betri í myndmiðlum og læsi á þá miðla, þeir fara á YouTube en hunsa textann. Það er bara mjög náttúrulegt þegar allt kemur til alls. Maður leitar og notar það sem manni er náttúrulegt að nota. Sagt er að faraó nokkur hafi einhvern tímann kvartað yfir uppfinningu leturs; að minnið myndi hverfa, að við myndum hætta að muna hluti af því að það yrði hægt að skrifa þá niður. Þegar grammófónninn var fundinn upp og það var hægt að taka upp plötur og hljóð þá áttu eyrun að hverfa þróunarlega séð af því að við myndum hætta að nota þau eða eitthvað því um líkt. Algjört bull að sjálfsögðu.
Við þurfum, held ég, að pása aðeins, aðeins að stíga til baka og hugsa: Bíddu, hvað er í alvörunni að stöðunni núna? Eru þetta í alvörunni vandamál eða eru önnur atriði sem við erum að fá í staðinn sem eru jákvæð fyrir næstu kynslóðir en eru fyrir okkur eitthvað sem við þekkjum ekki og höfum ekkert not af og erum við að dæma þá næstu kynslóð út frá okkar mælikvörðum en ekki þeirra?