154. löggjafarþing — 45. fundur,  7. des. 2023.

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu.

238. mál
[13:23]
Horfa

Tómas A. Tómasson (Flf):

Virðulegi forseti. Hv. þingheimur og kæra þjóð. Ég ætla að mæla fyrir breytingartillögu við frumvarp til laga um Miðstöð menntunar og skólaþjónustu sem kemur frá samflokksmanni mínum og vini, Eyjólfi Ármannssyni.

„Á eftir 2. gr. komi ný grein ásamt fyrirsögn, svohljóðandi:

Vísindaráðgjafarnefnd á sviði menntamála. Vísindaráðgjafarnefnd á sviði menntamála skal vera Miðstöð menntunar og skólaþjónustu og ráðherra til ráðgjafar á sviði fræðslu- og menntamála barna og ungmenna. Ráðherra skipar formann til fimm ára í senn og skal hann vera framúrskarandi fræðimaður á sviðinu á alþjóðlega vísu með mikla reynslu af rannsóknum og fræðiskrifum. Ráðherra skal skipa aðra nefndarmenn, að tillögu formanns, sem eru fræðimenn, hver á sínu sviði. Vísindaráðgjafarnefnd skal funda þrisvar á ári og oftar ef þurfa þykir. Miðstöð menntunar og skólaþjónustu getur leitað álits hjá nefndinni um ákveðin málefnasvið á breiðum grundvelli og nefndin verið henni til ráðgjafar um langtímastefnumótun um starfsemi stofnunarinnar. Nefndin skal upplýsa árlega um rannsóknir í heiminum sem hún telur æskilegt að stofnunin kynni sér. Hún skal einnig upplýsa ráðherra um það sem hún telur að betur mætti fara í skólastarfi í landinu og gera tillögur til úrbóta.“

Nú ætla ég að deila með ykkur minni reynslu af skólagöngu. Ég fór í Melaskóla í 9, 10, 11 og 12 ára bekk, síðan í Hagaskóla í 1. og 2. bekk og síðan í Verzlunarskólann í 1. og 2. bekk sem á þeim tíma var til siðs, að byrja 15 ára þar. Ég var skelfilegur námsmaður og fékk sjaldan meira en 6 en mér þótti gaman að leggja á borðið og vera að sýsla í eldhúsinu, bursta skó, strauja og gera alls konar heimilisstörf. Svo það endaði með því að ég fór að vinna á pylsubarnum Prima í Austurstræti. Þar var ég á heimavelli og hafði rosalega gaman af því að setja pylsur í brauð og tómatsósu og sinnep og svoleiðis og selja. Seinna æxlaðist það þannig að ég fór að læra matreiðslu. Þegar ég var byrjaður í matreiðslunni fann ég að ég var kominn heim en fljótlega áttaði ég mig á því að mig langaði til að gera meira en að vera matreiðslumaður, mig langaði til að vera veitingamaður. Þá fór ég aftur í Verzlunarskólann og nú hafði ég tilgang. Ég féll í 2. bekk í Verzlunarskólanum og hætti. Ég fór í 3. bekk og nú hafði ég ástæðu fyrir því að vera í skólanum og ég hafði rosalega gaman af því. Ég lærði eins og ég lifandi gat og ég bara spjaraði mig ágætlega. Seinna fór ég í háskóla í Bandaríkjunum og lærði hótel- og veitingarekstur.

Af hverju er ég að segja ykkur þetta? Vegna þess að ég held að mikið af þeim krökkum sem gengur illa í skóla hafi ekki fundið sig. Það þarf að finna út úr því hvað hverjum og einum þykir gaman að gera og hefur áhuga á. Það sagði eitt sinn maður við mig, mjög merkilegur maður, Isac Tigrett, sem stofnaði Hard Rock Cafe í London árið 1971: Ef þú gerir eitthvað sem þér finnst gaman að gera og gerir það vel þá þarftu ekki að hafa áhyggjur af framtíðinni, það kemur af sjálfu sér. Ég mæli með því að við leggjum áherslu á það að hjálpa börnunum að finna hvert hugur þeirra stefnir því það eru ekki allir — sonarsonur minn er ágætisnámsmaður en hann nennir ekki að læra algebru. Af hverju? Af því að hann sér engan tilgang með því. Hann segir: Ég get ekki notað þetta í framtíðinni og ég ætla ekkert að læra þetta. Það er nú svo oft þannig að fólk verður að hafa tilgang og það verður að sjá raunverulega ljósið í endanum á göngunum. Það verður að sjá stjörnuna, hvert það er að stefna. Ég ætla koma með tilvitnun hérna, með leyfi forseta: „Definite made your purpose in life.“ Það þýðir að hafa ákveðið markmið í lífinu. — Takk fyrir.