framlenging gildistíma bráðabirgðaákvæða um rafræna meðferð mála.
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um skipti á dánarbúum o.fl., lögum um meðferð einkamála, erfðalögum og lögum um meðferð sakamála.
Frumvarpið varðar framlengingu á bráðabirgðaheimildum þessara laga um rafræna meðferð mála. Þær bráðabirgðaheimildir sem um ræðir voru fyrst settar í lög vegna heimsfaraldurs kórónuveiru en í ljósi góðrar reynslu hefur undanfarin misseri verið unnið að því að koma þeim í varanlegt form. Hvað varðar meðferð mála fyrir lögreglu og dómstólum var frumvarp þess efnis kynnt í samráðsgátt stjórnvalda 1. nóvember á þessu ári og umsagnarfrestur ákveðinn til 20. sama mánaðar. Nú er unnið úr þeim ábendingum sem þar bárust og að lokafrágangi frumvarpsins en áætlað er að það verði lagt fyrir Alþingi innan fárra vikna. Á hinn bóginn er fyrirséð að ekki er raunhæft að ljúka þinglegri meðferð þess áður en þær bráðabirgðaheimildir sem um ræðir renna sitt skeið á enda um komandi áramót.
Þær bráðabirgðaheimildir í lögum um meðferð einkamála og lögum um meðferð sakamála sem frumvarp þetta varðar hafa í framkvæmd nýst vel við meðferð mála samkvæmt lögunum. Notagildi þeirra var sér í lagi mikið þegar heimsfaraldur kórónuveiru hafði hvað mest áhrif í þjóðfélaginu en einnig hefur verið góð reynsla af notkun fjarfundabúnaðar og annarra tæknilausna sem þykja eftirsóknarverðar og m.a. til þess fallnar að auka skilvirkni við meðferð mála, draga úr sóun, svo sem með minni notkun pappírs, ferðalögum o.fl. Einkum af þeim ástæðum var ákveðið að ráðast í að undirbyggja málsmeðferð á grunni laga um meðferð sakamála og laga um meðferð einkamála betur með tilliti til tæknilausna í fyrrgreindu frumvarpi sem nú er í vinnslu. Að óbreyttu myndu heimildir til skýrslugjafar hjá lögreglu og dómstólum í gegnum fjarfundarbúnað, mætingar málsaðila með aðstoð slíks búnaðar við meðferð mála fyrir dómi og framlagning gagna fyrir dómi á öðru formi en pappír falla úr gildi nú um áramót. Ef þessar heimildir féllu úr gildi um komandi áramót yrði farið á mis við það hagræði við málsmeðferð fyrir dómi sem í heimildinni felst, að lágmarki að sinni.
Þá hefur jafnframt verið unnið að því að koma á bráðabirgðaheimildum sem varða erfðalög og lög um skipti á dánarbúum o.fl. í varanlegt horf en sú vinna er skemur á veg komin. Ráðgert er að frumvarp sem m.a. myndi koma bráðabirgðaheimildum samkvæmt erfðalögum og lögum um skipti á dánarbúum o.fl. í varanlegt horf verði lagt fyrir Alþingi á 155. löggjafarþingi 2024–2025.
Bráðabirgðaheimildir í lögum um skipti á dánarbúum o.fl. og erfðalögum hafa sömuleiðis nýst vel við meðferð mála hjá sýslumönnum og er innleiðing tæknilausna fyrir skipti á dánarbúum komin vel á veg hjá embættunum. Í lögum um skipti á dánarbúum o.fl. og erfðalögum er víðs vegar að finna hindranir fyrir notkun tæknilausna þar sem lögin gera sem dæmi kröfu um skrifleg og undirrituð gögn við málsmeðferðina. Þar sem skipti á dánarbúum eru undanskilin gildissviði stjórnsýslulaga skv. 1. mgr. 2. gr. stjórnsýslulaga geta sýslumenn ekki byggt á IX. kafla þeirra laga og heimilað rafræna málsmeðferð. Í ljósi þess að stafrænar lausnir leiða til hagræðingar og bættrar þjónustu sýslumannsembættanna þykir mikilvægt að bráðabirgðaheimildir laga um skipti á dánarbúum o.fl. og erfðalaga verði framlengdar um tvö ár en unnið er að því að koma þeim í varanlegra horf.
Hæstv. forseti. Tilgangur frumvarpsins er einkum að brúa það bil sem fyrirséð er að skapast muni frá og með 1. janúar næstkomandi þar til löggjafinn hefur tekið afstöðu til þess hvort og þá hvernig sams konar heimildir og frumvarpið mælir fyrir um verði útfærðar varanlega í löggjöf.
Hæstv. forseti. Ég hef farið yfir helstu atriði frumvarpsins en að öðru leyti vísast til greinargerðar frumvarpsins og skýringar við einstök ákvæði þess. Ég legg til að frumvarpið verði að lokinni þessari umræðu vísað til hv. allsherjar- og menntamálanefndar og þar með til 2. umræðu.