fjárlög 2024.
Frú forseti. Það er komið að fjárlögum. Ísland fékk undanþágu vegna heimildar til losunar koltvísýrings í flugi til og frá landinu. Stjórnvöld og ýmsir hagsmunaaðilar töldu gjaldið vera of íþyngjandi, sérstaklega fyrir íslensku flugfélögin en einnig fyrir önnur flugfélög sem hingað fljúga og m.a. töldu þau að ferðamönnum myndi fækka ef flugmiði frá Evrópu hækkaði um 5.000–11.000 kr. Raunveruleikinn er sá að losun frá flugi á Íslandi hefur þrefaldast á síðustu 12 árum og er orðin meiri en losun frá álframleiðslu. Spár Ferðamálastofu segja til um að fjöldi ferðamanna aukist um 50% fram til ársins 2030 en þá gæti losun frá flugi orðið u.þ.b. 3,7 milljónir tonna koltvísýringsígilda á ári sem er fjórfalt meira en losun frá öllum vegasamgöngum.
Við erum sennilega flest sammála um að ferðamannaiðnaðurinn er gífurlega mikilvægur fyrir efnahag Íslands en er ótakmarkaður vöxtur í fjölda ferðamanna sú leið sem við viljum fara? Trompa gæði ekki fjölda? Viljum við að hingað sé ódýrt að fljúga með tilheyrandi losun gróðurhúsalofttegunda og ágangi ferðamanna á náttúru Íslands? Ættum við ekki frekar að leggja áherslu á vistvæna ferðamennsku og hreina náttúru og að raunverulega standa við þá ímynd sem við erum að selja út á við?
Á sama tíma og ríkisstjórn Íslands þykir brýnt forgangsmál að fá undanþágur frá gjöldum á losun frá flugi þá setti hún samt á gistináttagjald. Skattinum er ætlað að skila 4 milljörðum í ríkissjóð. Man spyr sig hvort það hafi ekki valdið henni sömu áhyggjum af fækkun ferðamanna að leggja á það gjald. Er viðhorfið allt annað þegar gjaldið rennur lóðbeint í ríkissjóð? Til að taka af allan vafa þá hef ég ekkert á móti gistináttagjaldi, enda höfum við sem höfum ferðast til Evrópulanda síðustu tíu ár greitt það á meginlandinu og ekki sett það fyrir okkur. Ég er einfaldlega að benda á að hér fer ekki saman hljóð og mynd.
Það var sjokkerandi að sjá samantekt RÚV nýlega sem varpaði ljósi á það að í dag gæti það borgað sig ef maður væri að ferðast á milli Reykjavíkur og Akureyrar að fljúga í gegnum London. Það var sem sagt hægt að finna ódýrara flug frá Akureyri til London og frá London til Reykjavíkur heldur en frá Reykjavík til Akureyrar. Það var í rauninni ódýrara að fljúga þessa leið með tilheyrandi losun heldur en að taka strætó frá Reykjavík til Akureyrar. Í dag er sem sagt enginn hvati til að ferðast innan lands með almenningssamgöngum, hvorki hvað varðar verð né tíðni ferða. Ríkisstjórnin virðist leggja allt kapp á orkuskipti á einkabílnum. Þrátt fyrir fögur fyrirheit og klapp hæstv. ráðherra á eigið bak varðandi græn orkuskipti þá fær Strætó engan stuðning til orkuskipta samkvæmt núverandi fjárlögum. Strætó var meira að segja gert að nota orkuskiptasjóðinn til að halda sér á floti í gegnum heimsfaraldurinn og núverandi 600 millj. kr. framlag í fjárlögum næsta árs dugir ekki fyrir verkefninu. Strætó situr því uppi með bága fjárhagsstöðu, gamla dísilvagna, hækkandi olíuverð og engan stuðning til raforkuskipta. Raunar fær Strætó minna en engan stuðning til orkuskipta því að núverandi ríkisstjórn ákvað í ofanálag að leggja virðisaukaskatt á bifreiðar sem ganga fyrir raforku, þ.m.t. strætisvagna. Ástandið er því núna þannig að aðilar sem eru í útboðum hjá Strætó vita ekki hvort þeir fái niðurgreiðslu úr Orkusjóði vegna orkuskipta. Þeir neyðast því til að bjóða eins og þeir fái hana ekki en Strætó þarf samt sem áður að greiða þeim samkvæmt útboði og tapar því mögulega gífurlegum fjármunum ef stjórnvöld ákveða svo eftir á að greiða úr Orkusjóði. Einnig liggur fyrir að brýnt er að klára endurskoðun á samgöngusáttmálanum svo raunhæft sé að leggja drög að innleiðingu nýs leiðakerfis. Það er skammarlegt hversu illa ríkisstjórnin hefur staðið sig í að uppfylla samkomulag sitt um borgarlínu og almenningssamgöngur.
Skilvirkar almenningssamgöngur eru lykilatriði í baráttunni gegn loftslagsvá og fyrir lífsgæði almennra borgara. Það hefur enginn gaman af því að eyða dýrmætum tíma sínum í umferðarteppu á einkabílnum á hverjum degi og kannanir sýna fram á að ef tíðni og almenningssamgöngur væru almennt skilvirkari myndu fleiri nýta sér þær. Það er einfaldlega svo í dag að strætóleiðir eru ekki nógu tíðar og samstilltar og það bitnar á fjölskyldufólki. Margt fjölskyldufólk getur ekki unnið fullan vinnudag og náð að sækja börnin sín í dagvist á réttum tíma með því að nota almenningssamgöngur. Sjálf keypti ég mér minn fyrsta bíl 37 ára vegna þess að ég var einstæð móðir og gat ekki látið það ganga upp að vera í fullri vinnu og sækja barnið fyrir lokun og hef ég nú samt notað almenningssamgöngur alla mína ævi, búið í Svíþjóð, Danmörku og í stórborgum Evrópu og ekki verið í neinum vandræðum með að sinna bæði vinnu og tómstundum og fjölskyldulífi.
Talandi um lífsgæði þá er það auðvitað óþolandi ástand hárrar verðbólgu og vaxtastigs sem almennir launþegar, millitekju- og lágtekjufólk þarf að lifa við. Húsnæðisafborganir og kostnaður við að lifa hækka langt umfram það sem mörg ráða við á meðan stórfyrirtæki búa við annan veruleika og geta gert upp í erlendum gjaldmiðlum og starfað í öðru vaxtaumhverfi en okkur launþegum er boðið upp á. Kunnugleg mantra er sömuleiðis farin að heyrast úr ranni hægri manna og hagsmunaaðila atvinnurekenda um að við þurfum að sýna aðhald í komandi kjarasamningum. Ábyrgð á enn og aftur að varpa yfir á almenna launþega og þeir beðnir um að sýna stillingu og meðalhóf í launakröfum um leið og vöruverð og afborganir hækka. Á meðan hæsta tekjutíundin á Íslandi greiðir 22% í fjármagnstekjur þá greiðir launafólk 31–46% af sínum launum. Það er einfaldlega ósanngjarnt. Við í Pírötum leggjum til að hækka fjármagnstekjuskattinn upp í 30% og hv. þm. Björn Leví Gunnarsson gerði vel grein fyrir forsendum þeirrar hækkunar í ræðu sinni um fjárlögin í gær. Ef ríkið fær auknar tekjur inn af þessari hækkun á fjármagnstekjuskatti er e.t.v. hægt að koma betur til móts við launþega í kjarasamningum. Tökum t.d. kvennastéttir. Enn hallar á konur og launamismunur í dag er um 21%. Þá er það helst vegna kvennastétta og skakks verðmætamats á störfum kvenna. Þessar kvennastéttir eru að ganga til samninga í vor og það er óboðlegt og ósanngjarnt að biðja þær að sýna stillingu og gæta hófs í kjarakröfum sínum. Skilaboðum ríkisstjórnarinnar og okkar sem hér sitjum ætti frekar að beina til atvinnurekenda, að sýna sanngirni í komandi kjarasamningum og taka mið af því efnahagsumhverfi sem við búum við og láta sig það varða að það fólk sem hjá þeim starfar og skapar þann auð sem þeir njóta góðs af geti lifað sómasamlegu lífi án þess að slíta sér algerlega út á líkama og sál.
Það er oft vísað í rannsóknir sem sýna að hér séu góð laun og færri unnar vinnustundir á Íslandi miðað við nágrannaríki sem við miðum okkur við. Hins vegar er hærri húsnæðiskostnaður, hærri vextir og hærri verðbólga. Einnig eru ekki teknar inn í dæmið unnar vinnustundir eins og t.d. ólaunuð störf sem kannanir sýna að konur taka að mestum hluta á sig hvað varðar umönnun barna og heimilisstörf, sem gjarnan er kallað önnur og þriðja vaktin. Og ekki er tekið inn í dæmið þær aukavinnur sem láglauna- og millitekjufólk stundar svart til að geta staðið í skilum og átt fyrir mat út mánuðinn. Það er eins og það megi ekki ræða það, það sé þá ekki til og sé ekki vandamál. Þótt dagvinnustundir sem eru gefnar upp séu færri er það staðreynd að hér er svartur markaður í iðnaði og þjónustu sem er kominn til vegna hárrar verðbólgu og vaxtahækkana sem gera það að verkum að fólk nær ekki endum saman. Að tækla verðbólgu og vaxtahækkanir er ekki á ábyrgð almennra launþega. Það er á ábyrgð þessarar ríkisstjórnar og stofnana sem hún stýrir. Ég vil biðla til ríkisstjórnarinnar að sýna stillingu og meðalhóf þegar kemur að kröfum til launafólks og vera sanngjörn í fyrirhuguðum kjarasamningum.