fjárlög 2024.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir andsvarið og spurninguna. Ég er honum einlæglega sammála um að ríkið, ráðherrar, ríkisstjórnin og Alþingi, þarf að hafa meira um húsnæðismál og húsnæðismarkaðinn í heild sinni að segja. Það gengur bara ekki upp að horfa á húsnæðismarkaðinn alfarið sem verkefni sveitarfélaganna því að þetta er langtum stærra mál en svo og húsnæðismál snúast auðvitað ekki bara um lóðaúthlutanir. Því meira sem maður skoðar gögnin verður í mínum huga augljóst að það er ekki hægt að vinda ofan af þeirri stöðu sem er komin upp á húsnæðismarkaði á höfuðborgarsvæðinu, í Reykjavík en á höfuðborgarsvæðinu í stærri mynd líka, það er ekki hægt að ná tökum á stöðunni á húsnæðismarkaði án þess að ræða atvinnustefnu samhliða, án þess að ræða það samhliða hvernig atvinnugreinarnar á höfuðborgarsvæðinu eru að þróast. Þar er ég auðvitað að horfa á ferðaþjónustu og veitingageirann. Því er ofboðsleg einföldun og bara rangt að leggja málið upp þannig að það snúist bara um lóðir. Húsnæðisvandinn er, eins og hv. þingmaður nefnir, staða á landinu öllu en birtingarmyndirnar eru ólíkar. Að einhverju marki myndi ég segja að það væri svolítið séríslenskt vandamál hvernig húsnæðislánin okkar þróast og geta nánast breyst eftir árstíðum. En húsnæðismarkaðurinn er ekki bara verkefni sveitarfélaganna og mér finnst rangt að tala um þá stöðu sem er uppi á húsnæðismarkaðnum núna sem framboðsvanda og framboðsskort ef ekki á samhliða að ræða það að við erum heimsmeistarar í fólksfjölgun. Fólksfjölgun hér er ofboðslega ör og kraftmikil. Ég er ekkert að tala hana niður en ef þú útilokar lykilbreytu þá nærðu ekki árangri.