154. löggjafarþing — 45. fundur,  7. des. 2023.

fjárlög 2024.

1. mál
[14:14]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Valgerði Árnadóttur kærlega fyrir andsvarið. Ég er sammála því og ég vona að það hafi verið skýrt hjá mér að þegar ég segi að allar mælingar sýni að fólk á íslenskum leigumarkaði þrái að kaupa sé það spegill á stöðuna á leigumarkaði en ekki þannig að fólk sé kannski upphaflega þannig innstillt að vilja bara kaupa. Við sjáum það svo skýrt þegar við berum saman Norðurlöndin t.d. að þar sem leigumarkaðurinn er heilbrigður og sanngjarn og dýnamíkin er eins og hún á að vera þá velur fólk sér að leigja. Þetta er bara ekki reyndin á Íslandi. Húsnæðisöryggi er minna á leigumarkaði og þegar ég nefni að húsnæðisverð hafi hækkað þá á það sannarlega við um leiguverð líka. Ég á við að þessi liður er að fara upp og nefni í því sambandi þingmál sem varaþingmaður okkar í Viðreisn, Dagbjartur Gunnar Lúðvíksson, lagði fram um það að fólk sem hefur staðist ákveðnar leigugreiðslur til lengri tíma eigi að geta staðist greiðslumat fyrir sömu upphæð. Þannig er það ekki í dag sem mér finnst algerlega galið, að fólk sem hefur sýnt það í reynd hvers það er megnugt í greiðslum og hvað það þolir í greiðslum fái síðan mat á pappír upp á eitthvað sem stangast á við veruleikann. Það finnst mér ekki geta gengið upp og það væri mikið réttlætismál ef þetta þingmál næði fram að ganga.

Varðandi ferðaþjónustuna og stefnu þar um þá hef ég talað fyrir mig sjálfa og mína persónulegu skoðun. Ég er á því að það sé vænlegra, til að tryggja vænlega sambúð ferðaþjónustu og samfélagsins í heild sinni, ekki síst hérna á höfuðborgarsvæðinu þar sem nú reynir verulega á húsnæðismarkaðinn og aðra innviði, að horfa til þess í einhverri stefnumótun stjórnvalda hvernig ferðamenn við viljum fá. (Forseti hringir.) Auðvitað veit ég að ekkert eitt algilt svar er við því þannig að stutta svarið væri kannski að við hefðum hugmyndir um það hversu langt við viljum stefna í fjölda.