154. löggjafarþing — 45. fundur,  7. des. 2023.

fjárlög 2024.

1. mál
[14:18]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V) (andsvar):

Frú forseti. Þingmaðurinn nefndi orðin heppin og heppni. Þetta finnst mér ég heyra æ oftar þegar fólk er að lýsa sínum veruleika og sínum aðstæðum: Ég var heppinn, ég keypti á góðum tíma. Ég var heppinn, við keyptum rétt áður en hækkanirnar fóru upp. Við vorum heppin, mamma og pabbi gátu hjálpað þannig að við gátum keypt og íbúðin hefur síðan hækkað í verði. Það segir ótrúlega mikið um stöðuna á húsnæðismarkaði að það séu orðnar ráðandi breytur hvort þú hafir verið heppinn eða kannski bara ótrúlega óheppinn og að tímasetningar hafi allt um þetta að segja. Við höfum séð það í gegnum tíðina — þetta er annað einkenni á íslenskum markaði og þessi meinsemd sem ég hef verið að tala um, óstöðugleikinn — að húsnæðismarkaðurinn er annaðhvort í frosti eða funa. Það er frost eða funi og við öll erum einhvern veginn meðvituð um að þetta sé bara staðan. En auðvitað þarf þetta ekkert að vera svona. Það á ekki að þurfa að vera þannig að fólk sem flyst til landsins, erlent verkafólk, búi í þannig húsnæði að okkur líður illa og við skömmumst okkar þegar við horfum á fréttirnar og myndefnið og þær aðstæður sem fólk býr við. Húsnæðismálin eru einhvern veginn að þróast þannig — af því að við vorum að tala hér um skóla fyrr í dag sem jöfnunartæki þá er ég einlæglega sammála því að skólinn eigi að vera það og hef áhyggjur af því ef það er að breytast, og mér sýnist að svo sé, en húsnæðismarkaðurinn á ekki að ýkja sveiflurnar eða ýkja forgjöfina sem sumir hafa og aðrir ekki. Það verður auðvitað að horfa á framboð og það verður að horfa á skipulag. Ég er að benda á það að við verðum að horfa á hlutina heildstætt; atvinnumál, þróun og uppbyggingu þeirra og samspil og sambúð við húsnæðismarkaðinn.