fjárlög 2024.
Frú forseti. Í fyrri ræðu minni í 2. umræðu um fjárlög fyrir árið 2024 þá endaði ég á kafla um landbúnað og erfiða stöðu bænda og tilkynnti þar að ég myndi fara í sérstaka ræðu um það í annarri ræðu og það er komið að því núna. Árið 2004 við gerð samninga um starfsskilyrði í mjólkurframleiðslu var ákveðið að slíta í sundur beinan stuðning ríkisins við framleitt magn mjólkur. Eldri samningar um mjólkurframleiðslu höfðu beina tengingu við útgefið greiðslumark, framleiðsluheimild, við framlög úr ríkissjóði. Við kollvörpun á stuðningi við landbúnaðarframleiðslu á árunum um og fyrir 1990 var niðurgreiðslum á búvöruverði breytt í beinan stuðning við bændur, oft nefndar beingreiðslur. Fram að þeim tíma, allt frá upphafi á niðurgreiðslum á matvöruverði til neytenda, hafði kerfið verið notað sem kjarajöfnunartæki. Í kjölfar þjóðarsáttarinnar var uppskurður á búvöruverðskerfinu ákveðinn. Á tímunum fram að þjóðarsátt gátu útgjöld til landbúnaðar og niðurgreiðslna á búvörum numið allt að 5–6% af landsframleiðslu. Við kerfisbreytinguna eftir þjóðarsátt var stuðningur ríkisins við mjólkurframleiðslu um 47–48% af framleiðslukostnaði mjólkur. Til þess að meta þann framleiðslukostnað var notast við verðlagsgrundvöll fyrir meðalstórt kúabú. Nýr verðlagsgrundvöllur var gerður með þátttöku launþegahreyfingar, bænda og afurðastöðva og er hann í grundvallaratriðum sá sami og verðlagsnefnd búvöru notar við ákvörðun á verði til bænda í dag.
Árið 2004 voru blikur á lofti og miklar breytingar í alþjóðlegu umhverfi búvöruframleiðslunnar og á samkeppnisstöðu íslensks landbúnaðar í svokallaðri Doha-viðræðulotu á vegum Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar. Sú viðræðulota rann að mestu út í sandinn við alþjóðlegt efnahagshrun 2008 en eftir sat að starfsumhverfi mjólkurframleiðslunnar var breytt 2004. Fyrir þann tíma var t.d. ákvörðun um hækkun á framleiðsluheimildum, greiðslumarki, sjálfvirk ákvörðun um aukin framlög úr ríkissjóði. Mat manna var því að ef Doha-lotan myndi raungerast á þeim forsendum sem þá voru á borðinu myndi íslensk mjólkurframleiðsla gefa hratt eftir. Á þeim tíma var útgefið greiðslumark 104 milljónir lítra. Þá var þörf á að hækka útgefið framleiðslumagn um 2 milljónir lítra til að fullnægja innanlandsneyslu en ríkið var ekki tilbúið til að hækka framlög til mjólkurframleiðslunnar. Bændur gátu á móti haft tryggingu fyrir því að stuðningur lækkaði ekki ef áhrif af breytingum innan Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar gengju eftir af fullum þunga.
Allt frá þessum tíma hefur fjárhæð til stuðnings mjólkurframleiðslu verið grundvölluð á fjárhæð frá árinu 2004 og miðað við 104 milljónir lítra og að 47% kostnaðar séu borin af opinberum stuðningi. Núna 20 árum seinna er innanlandsþörf á næsta ári metin um 151,5 milljónir lítra. Á þessum tíma hefur þessi fjárhæð ekki tekið öðrum breytingum en þeim að hún hefur verið framreiknuð, þó með þeim hætti að lengst af hefur 1% raunlækkun verið innifalin. Stuðningur er því 20% lægri að raunvirði og má með nokkurri einföldun segja að miðað við 47% kostnaðarþátttöku hins opinbera sé hann nú aðeins fyrir um 85 milljónir lítra, miðað við forsendur sem lagt var upp með á tímum þjóðarsáttarinnar.
Engin stétt á Íslandi hefur borið þyngri byrðar af þátttöku í þjóðarsáttinni en íslenskir bændur. Það var vitað á þeim tíma, enda var hún gerð með stuðningi bænda. Öllum var ljóst að svo há ríkisútgjöld til landbúnaðar, sem voru fyrir um 30 árum, væru algerlega ósjálfbær og gætu ekki gengið upp.
En á þessum árum frá 2004 hefur mikið breyst og margt verið reynt. Á þessum tíma hefur verið bætt við fjármunum til að efla íslenska nautakjötsframleiðslu, svo dæmi sé tekið. Það hefur líka verið hagrætt í úrvinnsluiðnaði mjólkur, gífurlega mikið. Þaðan hafa í raun kjarabætur til bænda verið sóttar. Auk þess hefur raunverð á matvælum lækkað. Hagur neytenda og bænda á þessum tíma nemur um 2 milljörðum árlega af þessum aðgerðum. Á þessum 20 árum hefur verið framfara- og uppbyggingarskeið í landbúnaði. Fjósum í framleiðslu hefur fækkað úr 1.600 í innan við 500 fjós frá tímum þjóðarsáttar. Mig minnir að í dag séu þau um 470–480.
Virðulegur forseti. Það hefur ekki orðið þróun heldur bylting. Einhver myndi segja hrun. En hversu mikið fjármagn hefur Alþingi og ríkissjóður dregið úr íslenskum sveitum á undanförnum 30 árum á sama tíma og við höfum aukið og eflt flest okkar velferðarkerfi og aukið hagsæld í landinu? Segja má að eftir þjóðarsáttarsamninga og fram að þeim tíma þegar offramleiðsla landbúnaðarvara var mikil hafi stöðnun ríkt í uppbyggingu og endurnýjun framleiðslutækja bænda. Á síðastliðnum 20 árum hefur orðið gífurleg fjárfesting í nýjum fjósum og nýrri tækni. Hátæknifjós og stórbættur aðbúnaðar er staðreynd. Á sama tíma hefur greinin sjálf fjármagnað úreldingu annarra framleiðslutækja með því að kaupa framleiðsluheimildir. Kaup á mjólkurkvóta hafa orðið að fjármagnsfrekum lið í rekstri kúabúa. Það má deila um þá aðferð en hin aðferðin var að úrelda framleiðslutækin, annaðhvort með opinberum styrkjum eða gjaldþrotum bænda. Fjárfesting í betri fjósum og framleiðsluheimildum ofan í það að ríkissjóður hefur stórlækkað framlög sín hefur því verið mætt með hagræðingu og hagkvæmari rekstri búa, með stækkun þeirra og aukinni tækni. Allt saman mjög þekktar aðgerðir og í takt við samfélagslega þróun flestra atvinnugreina.
Við efnahagshrunið 2008 stóðu bændur í áþekkum sporum og nú. Þá var stökkbreyting á verði aðfanga staðreynd eins og nú í kjölfar innrásar Rússlands í Úkraínu. Sú aðfangakreppa sem nú er gerist hins vegar þegar landbúnaðurinn er nánast án allra vopna til að bregðast við. Kreppan eftir efnahagshrunið var vissulega snörp og erfið en í kjölfarið, árið 2013 og fram á þennan dag, hefur aukin eftirspurn eftir framleiðsluvörunni hjálpað til við að glíma við vandann.
En hafa stjórnvöld raunverulega gert umhverfi landbúnaðar sterkara á þessum tíma? Jú, að mörgu leyti hafa aukin þjóðhagsleg umsvif líka komið sveitum og bændum til góða, sérstaklega aukin ferðamennska og vissulega líka fjárfestingar í bættum samgöngum, betri fjarskiptum og svo mætti lengi telja. En eru það ekki sjálfsagðir hlutir?
Stjórnvöld sem setja kröfur og lög um aðbúnað búfjár verða að horfast í augu við afleiðingar gjörða sinna. Sömu stjórnvöld hafa á þessum tíma frá þjóðarsáttarsamningum og efnahagshruni líka innleitt samninga um aukinn markaðsaðgang búvöru og aukna samkeppni frá löndum sem gera ekki sömu kröfur og við gerum, frá löndum þar sem laun eru lægri, hagkvæmni mun meiri og framleiðsluaðstæður betri, t.d. vegna hagstæðara veðurfars og meiri stöðugleika í efnahagsmálum. Þetta hefur lagt viðbótarbyrðar á íslenskan landbúnað. Þau hafa einnig hafnað öll þessi ár að tryggja þær samkeppnisaðstæður sem lagt var upp með að yrðu upp í kjölfar GATT-samninga um ákveðna tollvernd og samningagerð á grundvelli EES-samstarfs og neitað að rétta hlut bænda í þeirri samkeppni með því að uppfæra verðmæti þeirrar verndar sem tollskráin ætti að tryggja innlendum framleiðendum.
Það er í þessu ljósi sem ungir bændur héldu nýlegan baráttufund undir yfirskriftinni Laun fyrir lífi. Við búum í samfélagi sem er sterkt velferðarsamfélag með háum kaupmætti og öflugri velferð, en það er ekki hægt að ganga endalaust á velvilja bænda. Alþingi Íslendinga getur ekki yfirgefið íslenskan landbúnað sem framar öðrum hefur á undanförnum áratugum lagt sitt af mörkum að betri lífskjörum okkar allra. Alþingi hefur samþykkt grunn að landbúnaðarstefnu og Alþingi mun þurfa að mæta erfiðleikum samtímans en til lengri tíma verður að setja innihald og aðgerðir í landbúnaðarstefnuna og tryggja íslenskum landbúnaði rekstrargrundvöll og endurreisa skilning og trú á þýðingu og mikilvægi þess að við framleiðum heilnæm og örugg matvæli. Við nálgumst ekki síst orkuskiptin út frá þeirri staðreynd, sem er rétt, að efla efnahagslegt sjálfstæði okkar með innlendri orkuframleiðslu. Töpum þá ekki á sama tíma stöðunni sem við höfum þó enn þá í íslenskri matvælaframleiðslu. Hún grundvallar líka okkar efnahagslega sjálfstæði.
Frú forseti. Í fyrri ræðu greindi ég frá nefndaráliti meiri hluta fjárlaganefndar þar sem rætt var um stöðu landbúnaðarins og í meirihlutaálitinu er fjallað um að tillögugerð muni verða í 3. umræðu fjárlaga og við meðferð fjáraukalaga. Það hefur komið fram við 3. umræðu að það er gert ráð fyrir að það komi, að mig minnir, 200 milljónir til bændastéttarinnar í þeim tillögum sem við erum að vinna eftir núna. Annað kemur í fjárauka og ég kem betur að því í lok þessarar ræðu.
Í gær birti Stjórnarráðið á vef sínum tillögur til að bregðast við afkomuvanda bænda. Það er rétt að nefna það hér að fjárlaganefnd mun þurfa að fara yfir þær tillögur í umfjöllun sinni um fjáraukalög, greina hvernig þær tillögur eru uppbyggðar og meta áhrif þeirra, ekki síst í samhengi við þá stöðu sem blasir við. Með tilkynningunni á vef Stjórnarráðsins eru greiningar sem nefndin þarf að fjalla um og fá kynningu á. Ég ætla ekki að dæma þessa tillögu hér og nú, en vil aðeins ítreka það álit okkar í meiri hlutanum að bregðast verði við vandanum og ég fagna því skrefi sem nú er verið að taka. Af þeim viðbrögðum að dæma sem ég hef séð þá er verið að horfa til bráðavanda sem margir bændur standa frammi fyrir og rakinn hefur verið í ræðu minni hér á undan en miklu fleiri þætti þarf að taka til skoðunar og umfjöllunar. Formaður Samtaka ungra bænda sagði varðandi þessar tillögur eitthvað í þá veru að þær væru eins og plástur á opið beinbrot en vissulega skref í rétta átt.
Við sem hér erum í þessum sal lögum ekki stöðu bænda með plástrum og bráðaaðgerðum. Á undanförnum árum hefur Alþingi verið í bráðaaðgerðum en tími dýpri vinnu og varanlegra lausna er kominn. En fleira þarf að gera sem ekki endilega þarf að kosta fjárútlát ríkissjóðs.
Ég vil að lokum nefna nokkra þætti sem ég tel grundvallarmál að horfa til. Getum við lagt meira fram til að efla hagkvæmni búrekstrar? Markvissari ræktun? Hún er eftirtektarverð sú nálgun núna að efla notkun hrúta með verndandi arfgerð gegn riðu og að sama skapi gæti kyngreining á nautasæði orðið til þess að bæta afkomu og auka hagkvæmni í mjólkur- og kjötframleiðslu. Það má nýta verkfæri nákvæmnisbúskapar með hjálp hlutanets, með leyfi forseta, kallað á enskri tungu „internet of things“, við höfum íslenskað það sem hlutanet, þar sem stafrænar upplýsingar með hjálp gervigreindar hámarka nýtingu á ræktarlandi. Við erum vel í stakk búin að innleiða slíka tækni hér á landi með öflugar fjarskiptatengingar í sveitum, þar eru líka möguleikar sem geta nýst garðyrkju og annarri jarðrækt. Ég nefni yfirferð og endurskoðun á starfsumhverfi afurðastöðva og úrvinnslustöðva í landbúnaði, aukna sérhæfingu, verkaskiptingu og tæknivæðingu. Hvers vegna hefur ekki í áratugi verið hægt að byggja nýtt sláturhús eða nýja mjólkurstöð frá grunni? Hvað segir það okkur um þrótt atvinnugreinar að hafa ekki getað sótt sér nýjustu tækni í þeim efnum í miklu stærri stíl, tækni sem við sjáum í okkar fullkomnustu vinnslustöðvum fyrir fiskafurðir? Það þarf að skapa möguleika, án þess að slíkt eigi að bitna á neytendum, til að fyrirtæki í landbúnaði hafi tækifæri til slíkrar sóknar. Það liggur fyrir úttekt Ríkisendurskoðunar á framkvæmd á eftirliti með innflutningi á búvörum. Afar mikilvægt er að við berjum nú í þá bresti sem sú skýrsla afhjúpar. Þar eru tækifæri til að skapa mun heilbrigðara samkeppnisumhverfi fyrir bændur. Fréttir eru um að útflutningstölum frá öðrum ríkjum á búvöru, sérstaklega frá ESB-löndum Evrópusambandslöndunum, beri ekki saman við innflutningstölur hér á landi, oft er sérstaklega talað um mjólkurduft í því sambandi. Við getum ekki látið sem við sjáum ekki svona brotalamir endalaust án þess að aðhafast eitthvað.
Eigum við að ræða endurskoðun tollverndar og hvernig hún hefur brunnið upp á síðastliðnum áratugum? Það er vinsælt hjá stjórnmálamönnum að tala um að það þurfi að breyta kerfinu. Breytum þá kerfinu. En það er alveg sama hvernig við tölum um það ef við stöndum ekki við þau kerfi sem þegar eru og eiga að virka. Ég held að bændur séu almennt opnir fyrir því að breyta og endurhugsa en það er alveg sama hvernig við breytum og hvernig við hugsum kerfi ef þau skila ekki viðunandi afkomu.
Við verðum að viðurkenna að á síðustu áratugum höfum við sparað ríkissjóði og skattgreiðendum tugi milljarða í lækkun framlaga til landbúnaðar og erum löngu komin að þolmörkum í þeim efnum. Á sama tíma ræðum við hér í þinginu og samþykkjum meira íþyngjandi lög og reglur um aðbúnað. Við samþykkjum hamlandi ákvæði um frelsi bænda til að hámarka verðmæti jarða sinna, allt undir merkjum þess að við viljum vernda ræktarland og halda eignarhaldi á landi sem mest hér heima. En hvers virði er það ef enginn getur lifað af því að yrkja landið og nýta ræktunarland, ef bændur verða að neita sér og fjölskyldum sínum um það sem okkur finnst sjálfsagt eins og styttingu vinnuviku, veikindafrí, sumarfrí og ef þeir geta ekki staðið undir kröfum sem við gerum til aðbúnaðar búfjár nema lenda í skuldafjötrum? Við nálgumst orkuskiptin út frá þeirri hugsun að það stuðli að efnahagslegu sjálfstæði okkar að framleiða sem mest af okkar orku. Það er alveg sama efnahagslega sjálfstæði undir þegar við veikjum undirstöður innlendrar matvælaframleiðslu. Matur og orka eru hornsteinar í sjálfstæði þjóðar og gleymum því aldrei.
Nú eru komnar fram tillögur starfshóps ráðuneytisstjóra, bara í þessari viku, og þær eru tengdar við fjáraukalagafrumvarpið sem við erum að fara að vinna með í hv. fjárlaganefnd. Ég ætla að ræða þær tillögur betur í ræðu sem snýr að fjáraukanum sjálfum. En ásamt þremur ráðuneytisstjórum hafa komið að þessu starfi til ráðgjafar Byggðastofnun, Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins og viðskiptabankarnir. Margt áhugavert sem er rætt þar og nauðsynleg vinna hefur farið fram. Ég vona að hún muni nýtast okkur líka inn í framhaldið þegar við ræðum þessi mál.
En það sem við erum að fást við fyrst og fremst núna er þessi staða sem er gríðarlega erfið, vonandi til skamms tíma, og hefur komið upp á undanförnum mánuðum, sérstaklega síðustu 12–18 mánuðum eftir að stýrivextir fóru upp úr kannski þessum hefðbundnu 4–5% stýrivöxtum upp í það mesta núna, 9,25%. Þetta hefur gerst síðustu 15, 16 mánuði að mestu. Það eru margir að lenda í því, heimili og fyrirtæki, en sérstaða bænda er að allar aðfangakeðjurnar urðu miklu dýrari; kjarnfóður, áburður, rekstur á tækjum, orkukostnaður, þannig að vandinn er miklu margslungnari og erfiðari og það ber að vekja sérstaklega athygli á því þegar við erum að ræða þessi mál, þetta snýst ekki eingöngu um vaxtakostnaðinn. Það sem er líka sérstakt, þá kannski sérstaklega hjá kúabændum, tengist aðbúnaðarmálum, eins og ég hef komið að í þessari ræðu, kröfum um aðbúnað. Það hefur verið gríðarleg fjárfesting þannig að fjárbinding á móti veltu í landbúnaði er gríðarlega há þessi misseri.
En þetta er gott að sinni og við ræðum þetta frekar í tengslum við fjáraukann. Ég hef lokið máli mínu, frú forseti.