154. löggjafarþing — 45. fundur,  7. des. 2023.

fjárlög 2024.

1. mál
[14:41]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Það gleður mig að heyra að hv. þm. Njáll Trausti Friðbertsson veki máls á málefnum landbúnaðarins hér í ræðu sinni um fjárlög í dag. Við verðum öll að viðurkenna að vaxtabyrði bænda er stórt vandamál og ég skynja það svo sannarlega á hv. þingmanni að hann sé sammála því. Eins og ágætlega var farið yfir þá er eðli búskapar þannig að það er erfitt að aðskilja annars vegar heimili og hins vegar fyrirtæki sem verið er að reka á vettvangi þess. Reksturinn er ekki að því leyti sá sami og í hreinum atvinnurekstri, hann er samofinn heimilunum. Það verður líka að segjast eins og er að velferð búfjár er í stöðugum forgangi hjá þessum hópi. Til að mynda er gott dæmi um þetta, eins og komið var inn á, að mjólkurbú hafa ekki val um að fresta neinum fjárfestingum og forgangsraða sínu fé í annað en að vera réttum megin við það lögmæti sem leiðir af gildandi réttarumhverfi hverju sinni. Að því leytinu til hefur landbúnaðurinn mikla sérstöðu. Ég óska eftir afstöðu hv. þingmanns um vilja hans og afstöðu til þess að koma þessum heimilum til sérstakrar bjargar í formi sérstakra vaxtabóta til bænda miðað við núverandi efnahagsaðstæður. Ég vísa þar til minnihlutaálits hv. formanns Samfylkingarinnar um viðbótarvaxtabætur í formi 2 milljarða kr. til að bregðast við þessum bráðavanda sem sannarlega er til staðar.