fjárlög 2024.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir gott svar. Ég fagna því að við séum ekki í innbyrðis ágreiningi um það hversu mikill vandinn er. Til samanburðar þá skilst mér að tillögur hljóði upp á 1,6 milljarða þannig að tillögur Samfylkingarinnar gefa vissulega örlítið í. Áherslurnar eru umfram annað á vaxtakostnað sem leiðir af þeirri stöðu sem nú er komin upp. Ég tók samt eftir því að hv. þingmaður nefndi það sérstaklega að það væri ekki til mikils að setja plástur á opið beinbrot. Ég ætla ekki að taka undir það orðfæri vegna þess að það er ákall um bráðaaðgerðir og ég held að það sé algerlega ljóst að það vilja öll sjá metnaðarfulla endurskoðun í þágu bænda sem eru stétt sem glímir við mjög háan meðalaldur, það er lítil sem engin endurnýjun í stéttinni og mjög mikil óvissa um þennan atvinnuveg til framtíðar sem kjölfestugrein í íslensku efnahagslífi. Við verðum öll að vera ásátt um að það sé stórt vandamál. Ég er ekki ein af þeim sem tala um íslenskt fæðuöryggi vegna þess að aðföng koma erlendis frá hvað sem öðru líður. En ég hlýt að styðja eins og hvert annað mannsbarn hér á landi fjölbreytta atvinnuvegi um land allt og þá þurfum við nýliðun. Ég segi: 12 milljarða vantar að öðru óbreyttu inn í landbúnaðarkerfið. Ég vona að við getum skapað þjóðarsátt um að reyna að skapa betri skilyrði svo að nýliðun geti orðið að veruleika.