fjárlög 2024.
Frú forseti. Ég var að vitna í formann ungra bænda. Ég vil reyndar taka fram hversu frábær fundur ungra bænda var í Salnum fyrir um mánuði síðan og við getum lært mikið af því sem þar fór fram. Það er til myndband frá þeim fundi á internetinu.
Bráðaaðgerðir. Ég hef kannski ekki orðað það nógu sterkt áðan. Ég var kannski að reyna að tala að einhverju leyti um mikilvægi þess að við erum í bráðaaðgerðum núna. Það er bara þannig. Og þessi skarpa staða, ég hef þekkt til kúabænda í 40 ár en ég hef aldrei séð svona stöðu eins og er akkúrat núna; á stórum myndarlegum búum sem eru rekin vel og af miklum dugnaði í áratugi. Það er erfið staða að myndast. Það er m.a. út af aðbúnaðarkröfum og ýmsum fjárfestingum og öðru sem er mikill hvati vegna þess að það er, held ég, árið 2034 sem þarf að vera búið að uppfylla reglugerðir, sem koma m.a. frá Evrópusambandinu, um aðbúnað dýra, þannig að það eru allir svolítið í kappi við tímann að standast ákveðnar kröfur ef þeir ætla að halda áfram í þessum rekstri. Það er ákveðinn hluti af öllu þessu máli. Meðalaldur bænda á Íslandi er 57 ár. Ég er þá enn þá undir meðalaldri íslenskra bænda sem dæmi, verð 54 ára á síðasta degi ársins. Ég var í Þýskalandi vegna NATO í september, í Berlín og annars staðar. Þar er meðalaldurinn 61 ár. Hann er gríðarlega hár um alla Evrópu. Það eru gríðarlegar áhyggjur af þessum háa meðalaldri. En ég verð hins vegar að segja þá að lokum að í því stóra landi, Evrópusambandslandi, Þýskalandi, var fátt meira sem þingmenn í Þýskalandi ræddu við okkur um í tengslum við NATO og NATO-þingið heldur en fæðuöryggi. Þeir eru rosalega uppteknir af fæðuöryggi; sérfræðingar, þingmenn og allir. Þannig að þetta er eitthvað sem við þurfum virkilega að halda áfram að ræða. Ég vil bara þakka fyrir góð andsvör til að ræða þetta mikilvæga mál.