154. löggjafarþing — 45. fundur,  7. des. 2023.

fjárlög 2024.

1. mál
[14:50]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir ræðu sína. Talgreindi textinn er ekki kominn inn á heimasíðu en mér heyrðist hv. þingmaður segja í ræðu sinni, í tengslum við landbúnaðarkafla ræðunnar, að þrátt fyrir allt þá hefðu bændur það betra nú um stundir heldur en áður var. Mig langar bara að biðja hv. þingmann að leiðrétta þetta, ég treysti á að mér hafi misheyrst, (Gripið fram í.) ég trúi ekki öðru, en ef ekki þá vildi ég biðja hv. þingmann að staðfesta það. Eins og ég segi, talgreindi textinn er ekki kominn þannig að ég gat ekki leitað af mér grun, en mér varð svo mikið um að mér svelgdist á vatnsglasinu sem ég var að drekka úr. En spurningin er hvort hv. þingmaður geti kannski ítrekað afstöðu sína varðandi það hver staða bænda er í dag miðað við það sem áður var, bæði ef við horfum til upphafs samstarfs þessarar ríkisstjórnar fyrir sex árum síðan og kannski 10–20 ár aftur í tímann. Er staðan í dag þrengri eða rýmri heldur en þá var?