fjárlög 2024.
Frú forseti. Ég ætla rétt að vona að þetta hafi verið mismæli af minni hálfu því að ræðan snerist nákvæmlega akkúrat ekki um að bændur hefðu það gott í dag. Ég var einmitt í andsvörum rétt áðan með þetta atriði, ég var að taka dæmi um kúabændur sem ég hef þekkt lengi, áratugum saman og stöðuna sem er uppi núna á góðum og vel reknum, öflugum einingum — ég hef ekki heyrt af svona stöðu áður eða í samtölum. Bændur eru launalausir á stórum öflugum búum, þeir eru farnir að keyra vörubíla, leita að vinnu út fyrir búið, keyra rútur og annað. Það hefur eiginlega verið óþekkt í kúabúskapnum, ég vona að hv. þingmaður sé mér sammála um að þannig höfum við þekkt þetta. Ég kom líka inn á söguna í minni ræðu en það er svolítið lengra mál og erfitt að koma því að í stuttu andsvari sem ég er búinn að tala um, bæði í fyrri umræðu, um bændur og þeirra stöðu, og síðan þessi ræða mín um þessi mál. Tollverndin og samningurinn 2015, 2016, það hefur ekki ræst vel úr honum og það er bara sérumræða og væri hægt að fara yfir í löngu máli. Ég held að hv. þm. Bergþór Ólason þekki þá umræðu að einhverju leyti. Ég kom inn á það í minni ræðu að við þurfum aðeins að fara í tollnúmerin og aðeins að skoða og hafa meiri eftirfylgni með samningnum í tengslum við innflutninginn og síðan tollverndina. Við þurfum virkilega að ráðast í eitthvert átak sem snýr að því. En svo er það bráðavandinn, sem ég var líka að reyna að koma frá mér, sem tengist að einhverju leyti Covid en sérstaklega innrás Rússa í Úkraínu og hvernig það bara brestur á, áburðarverð hækkar um 110–120%, kjarnfóður yfir 30%, 30–40%. Þetta er gríðarlegt högg, ofan á háa stýrivexti og hátt vaxtastig, þannig að hátt vaxtastig er kannski bara helmingurinn af málinu þótt ég sé ekki alveg með veginn kostnað af því hvernig það hefur þróast.