154. löggjafarþing — 46. fundur,  8. des. 2023.

fjárlög 2024.

1. mál
[13:17]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni þetta fína andsvar. Fyrst varðandi heilbrigðismálin annars vegar og félagslegu kerfin hins vegar þá held ég að þar séum við með þessi burðarkerfi sem taka til sín hvað mesta fjármagn þar sem við þurfum að fara í þá vegferð að reyna að laga kerfin, fá meira út úr þeim fyrir minna. Það er eitthvað sem við gerum ekki á nokkrum dögum hér í aðdraganda samþykktra fjárlaga. Þannig að aðhaldstillögur okkar fara víða. Ég ætla bara að nefna þrjá punkta hérna.

Í fyrsta lagi held ég, og það má segja að það sé úr karakter við mig miðað við þær ræður sem ég hef flutt á fyrri stigum, en ég tel að á ákveðnum sviðum sé t.d. fjárfestingarlegt svigrúm til aðhalds í samgöngumálum og horfi þar fyrst og fremst til fjárveitinga er varða borgarlínu. Mér sýnist samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins hafa þróast með þeim hætti að Reykjavíkurborg þvælist fyrir öllum stofnbrautaframkvæmdum sem mest hún má. Þannig að ég held á meðan það er staðan að menn nálgast samkomulagið með sitt hvorum hættinum þá séu forsendur til þess að ríkissjóður segi bara: Heyrðu, nú skulum aðeins taka eitt skref til baka, finnum út úr því hvernig við ættum að leysa heildarmyndina í þessum efnum og höldum síðan áfram. Það gæti skapað töluvert svigrúm gagnvart fjárlögum næsta árs.

Ég held sömuleiðis að það að ná stjórn á landamærunum með ákveðnum aðgerðum strax muni draga mjög verulega úr útgjöldum þar og það gerist til þess að gera hratt, þ.e. viðbótin sem kemur inn. Það eru auðvitað stórir hópar sem eru hér og bíða afgreiðslu sinna mála en það hægir á straumnum ef við náum tökum á þessum málum.

Og í þriðja lagi þá held ég að við munum horfa til loftslagsmálanna og ýmissa þátta þar. Síðan eru fleiri þættir sem mér gefst ekki tími til að fara í núna og ég er ekki alveg viss um að ég vilji úttala mig um á þessum tímapunkti bara vegna undirbúnings tillagna okkar. En þetta eru þessi þrjú kjarnaatriði sem við leggjum til aðhald í strax en stóru heilbrigðis- og velferðarkerfin eru ekki undirorpin miklum niðurskurðartillögum frá okkur.