154. löggjafarþing — 46. fundur, 8. des. 2023.
staða barna innan trúfélaga.
540. mál
Herra forseti. Mig langar bara að vekja athygli þingheims á því að þetta er í þriðja skipti sem við greiðum atkvæði um þessa skýrslubeiðni og ég vona svo sannarlega að í þessari tilraun eða með þessari samþykkt hér í dag takist okkur að koma málinu í höfn og við fáum skýrslu frá hæstv. félags- og barnamálaráðherra um stöðu barna innan trúfélaga. Er ekki stundum sagt: Allt er þá þrennt er? Og nú vona ég bara að þessi skýrsla fari áfram. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)