Miðstöð menntunar og skólaþjónustu.
Virðulegi forseti. Já, ég styð og við í Viðreisn styðjum þetta frumvarp eindregið og þessa nýju stofnun. Við höfum samþykkt mörg lögin hér á þessu þingi og á Alþingi í gegnum tíðina sem snerta skólalöggjöf. Þá skiptir líka máli að því verði fylgt eftir. Ég sé mörg tækifæri felast í því að þessi stofnun verði sterk; styðjandi, umvefjandi varðandi skólastarfið, varðandi kennara, þegar kemur að nemendum. Það er alveg ljóst að hún þarf stuðning af hálfu ráðherra hverju sinni. Ég vil nota þetta tækifæri til að hvetja ráðherra til að ekki bara veita stofnunum aðhald heldur líka eindreginn stuðning því að hún er og getur að mínu mati orðið mikilvægt tæki til að laga skólaumhverfið okkar enn betur og það er þörf á því. Um leið vil ég hvetja ráðherra til að huga að enn frekari stefnumótun varðandi námsgögn og fleira sem stofnunin getur séð um.