Miðstöð menntunar og skólaþjónustu.
Hæstv. forseti. Við jafnaðarmenn tökum undir með hv. þm. Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur varðandi samþykkt þessa frumvarps. Við höfum átt ágætissamstarf innan nefndarinnar í tengslum við þær breytingar sem verða á eftirlitsumhverfi með skólastarfi í þessu landi og ég tek undir það sem hefur verið sagt að það er einsýnt að íslenskar skólastofnanir skortir tilfinnanlega gagnleg mælitæki til að framkvæma nauðsynlegar úrbætur á því skólastarfi sem núna er í mikilli umræðu.
Það verður hins vegar að segjast alveg eins og er að yfirlýsingar sem hafa mikið komið fram hérna um að við eigum að horfa með auknum hætti út fyrir landsteinana og þá sérstaklega til Norðurlandanna verður auðvitað að skoða í mjög stóru samhengi og við fleira en bara menntamál því að ef við ætlum að horfa með þeim hætti til norrænna stofnana þá hlýtur annað og fleira að koma til skoðunar en bara það hvernig skólinn lítur út, það kemur til skoðunar hvernig samfélagið lítur út. Að öðru leyti þá lofa ég því að samhliða auknu eftirliti og aðhaldi inni í skólastofnunum þá munum við jafnaðarmenn að sama skapi halda ráðherra við efnið og veita honum aðhald með því að hafa aðhald.