154. löggjafarþing — 46. fundur,  8. des. 2023.

fjárlög 2024.

1. mál
[15:30]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Fjárlög eru stærsta mál hvers árs fyrir ríkisstjórnina. Í fjárlögum eru spilin lögð á borðið og sýnt hvernig á að standa við stóru orðin, stóru orðin um aðhaldssöm fjárlög í 8% verðbólgu og með 9,25% stýrivexti, stóru orðin um átak í læsi, traust á stjórnmálum, selja banka, nýja stjórnarskrá á tveimur kjörtímabilum og þess háttar. Við verðum að gera meiri kröfur til stjórnvalda en þær efndir sem er hvergi að finna í þessum fjárlögum því að stóru orðin um aðhald til að berjast við verðbólguna eru búin að heyrast frá ríkisstjórninni í eitt og hálft ár. Samt erum við enn þá að bíða eftir árangri. Það gengur ekki að stjórnarliðar segi bara aðhaldssöm fjárlög þegar hið gagnstæða blasir við okkur og allar umsagnir eru ósammála ríkisstjórninni. Það þarf nýjar hugmyndir og nýja framtíðarsýn. Gamla pólitíkin er ekki lengur með lausnirnar.