154. löggjafarþing — 46. fundur,  8. des. 2023.

fjárlög 2024.

1. mál
[15:52]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Ef fólk tekur eftir er hér lagt til að tekjuskattur einstaklinga og staðgreiðsla lækki um rúmlega 3 milljarða. Þetta er út af því að við erum að leggja til að fella niður lög um sóknargjöld, að trúar- og lífsskoðunarfélög geti einfaldlega innheimt félagsgjöld sjálf en ríkið geri það ekki fyrir þau og þar af leiðandi lækkar tekjuskattur um þá upphæð sem annars hefði farið í sóknargjöld.