154. löggjafarþing — 46. fundur,  8. des. 2023.

fjárlög 2024.

1. mál
[16:07]
Horfa

Inga Sæland (Flf):

Herra forseti. Hér erum við að tala um að hækka bankaskattinn í 0,838%. Eins og kom fram hjá hv. þingmanni hér á undan, Eyjólfi Ármannssyni, eru bankarnir að skila hagnaði sem mun sennilega verða á bilinu 80–100 milljarðar á árinu. Við erum að horfa upp á stórkostlega fjármagnsflutninga frá heimilum og fólkinu í landinu og meðalstórum fyrirtækjum. Það er verið að hrúga peningum inn í bankana. Hræðsluáróðurinn er þessi: Þið bítið í skottið á ykkur og bankarnir munu einfaldlega hækka álögur og hækka vexti enn frekar og færa í rauninni þessa hækkun út í verðlagið hjá sér alveg upp á nýtt. Ég spyr bara einfaldlega: Hver í ósköpunum er löggjafinn hér? Er okkur ekki í lófa lagið að standa í lappirnar og sjá til þess að hlutirnir gangi upp? Mér finnst bara galið hvernig er alltaf verið að koma fram og búa til eitthvað um ekki neitt sem þarf ekki að vera nokkur skapaður hlutur. Við erum löggjafinn. Það er í okkar valdi að sjá til þess að hlutirnir gangi upp fyrir allt samfélagið, ekki bara suma. Það er í okkar höndum að sjá til þess að allir axli ábyrgð á því efnahagsrugli sem er í gangi akkúrat í dag.