fjárlög 2024.
Herra forseti. Ég ætla ekki að greiða atkvæði með þessari tillögu ofur einfaldlega vegna þess að hér er nokkuð hraustlega í lagt, svo ekki sé fastar að orði kveðið. Ég hygg að svona mikil breyting myndi hitta verst fyrir nákvæmlega þá sem við eigum að vera að hugsa mest um núna þegar verðbólga og vextir eru hærri. Þetta færi beint út í það sem fólkið sjálft myndi greiða fyrir. Hún er það mikil, þessi hækkun. Í annan stað, þegar rætt er um aukna samkeppni á bankamarkaði, sem yrði sennilega eitt skilvirkasta tólið til þess að bæta kjör viðskiptavina bankanna, þá ætti þingheimur að velta því vel fyrir sér hvernig standi á því að við fáum aldrei neina bankastarfsemi hingað til lands að utan í samkeppni við þá innlendu. Það er góð og gild ástæða fyrir því og það ætti að vera stóra úrlausnarefnið okkar. En við þessari tillögu ætla ég að segja nei.