fjárlög 2024.
Virðulegur forseti. Hér er verið að fara fram á það að veiðigjald á næsta ári verði 15 milljarðar, hækki þar af leiðandi um 4 milljarða og 910 milljónir. Tekjur ríkissjóðs af veiðigjaldinu duga ekki einu sinni fyrir rekstri Fiskistofu, Hafrannsóknastofnunar og Landhelgisgæslu. Það er umhugsunarefni. Í umræðum um fjárlögin höfum við talað um fjárskort Landhelgisgæslunnar og það er bara mjög mikilvægt að þeir sem fá þjóðarauðlindina afhenda til að veiða greiði sanngjarnt gjald í sameiginlega sjóði landsmanna. Veiðigjaldið átti að tryggja þjóðinni hlutdeild í þeim hagnaði sem auðlindin skilar en stjórnvöld hafa ekki séð til þess. Auðvitað á að greiða markaðsgjald og hér erum við að nálgast markaðsgjaldið. Við getum líka nálgast markaðsgjaldið með því að setja allan fisk á markað, a.m.k. stærstan hluta. Hér er um mjög mikilvæga tillögu að ræða og við verðum að fara að fá meiri pening í ríkissjóð af sameiginlegri auðlind landsmanna.