154. löggjafarþing — 46. fundur,  8. des. 2023.

fjárlög 2024.

1. mál
[16:28]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegi forseti. Hér greiðum við atkvæði um aðallega tvennt sem er mjög mikilvægt. Það er fyrst og fremst að draga úr því aðhaldi sem var sett á löggæsluna en fyrir ári síðan samþykktum við hér verulega mikla aukningu til lögreglunnar til að mæta auknum áskorunum og innleiða það og þar sem launakostnaður er yfir 80% hjá löggæslunni myndi það annars vera fækkun á mannskap aftur og því erum við að leiðrétta þetta hér, held ég, þriðju fjárlögin í röð, vonandi þau síðustu sem við þurfum til að leiðrétta þetta. Svo eru þarna 200 milljónir til að flýta afgreiðslu umsókna vegna mála um alþjóðlega vernd og annað slíkt. Það er mjög mikilvægt að auka í þá afgreiðslu.