fjárlög 2024.
Forseti. Eins og hefur komið hérna fram, og ég tek undir með hv. þm. Lenyu Rún Taha Karim, sýnir þessi breyting að þessi ríkisstjórn er svo sannarlega til í að eyða peningum í útlendingamál, en ekki mál sem snúast um það að hjálpa fólki. Það snýst ekki um að verja milljörðum á milljörðum ofan í að hjálpa flóttafólki, alls ekki, heldur snýst það um að setja allt sem við eigum í að koma fólki úr landi. Þarna er verið að auka útgjöld ríkissjóðs í stað þess að setja stefnuna á það að leyfa fólki að fara út á vinnumarkað, að byggja upp líf sitt sjálft og verða þegnar í samfélaginu og verða því til tekna.