154. löggjafarþing — 46. fundur, 8. des. 2023.
fjárlög 2024.
1. mál
Virðulegi forseti. Þegar gæta þarf aðhalds er ágætisviðmið að gæta hófs hvívetna en eyða í og standa vörð um það sem okkur þykir mikilvægast. Í því ljósi legg ég til að 100 milljónum verði bætt við fjárframlög næsta árs í Auði, barna- og ungmennabókasjóð. Ég legg sem sagt til að við styrkjum ritun bóka fyrir börn og ungmenni. (BLG: Heyr, heyr.)