154. löggjafarþing — 46. fundur,  8. des. 2023.

fjárlög 2024.

1. mál
[17:43]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegi forseti. Hér er lögð til tvöföldun framlags ríkisins til vaxtabóta. Við skulum hafa eitt algerlega á hreinu; að með því að pína heimili í landinu með 9,25% stýrivöxtum þá mun verðbólgan ekki nást niður, svo mikið er víst, og það skiptir engu máli hversu mikið þeir stýrivextir hækka. Grunnorsök verðbólgunnar liggur ekki lengur húsnæðisverði og hækkun húsnæðisverðs eða því að heimilin í landinu séu að reyna að fjármagna eðlileg húsnæðiskaup sín. Heimilin í landinu róa nú lífróður vegna hins gríðarlega vaxtastigs í landinu og stefnir nú í að fjölskyldur í þúsundatali muni missa heimili sín á næstu misserum vegna síhækkandi afborgana. Markmiðið með þessari breytingu er að fleiri fjölskyldur og einstaklingar fái greiddar vaxtabætur á næsta ári og hafa vaxtabætur verið hækkaðar frá því sem nú er, sérstaklega til þeirra sem verða verst fyrir barðinu á því gríðarlega háa vaxtastigi. Við munum ekki ná niður verðbólgunni með hærri stýrivöxtum í landinu sem mun bitna á heimilum í landinu. Grunnorsökin er önnur. Hún er m.a. fólgin í því ef okkur fjölgar á 1.000 manns á ári (Gripið fram í: Mánuði.)og við erum með hagvöxt sem er gríðarlega mikill. (Gripið fram í: Mánuði.) — Ég segi já.