fjárlög 2024.
Virðulegi forseti. Við greiðum hér atkvæði um hvort við viljum fjölga þeim fjölskyldum sem fá vaxtabótastuðning eða í rauninni skattalega ívilnun vegna hárra vaxtagreiðslna á næsta ári í staðinn fyrir, eins og ríkisstjórnin stefnir að, að henda 5.000 manns út úr vaxtabótakerfinu. Það hefur ýmislegt verið sagt um vaxtabótakerfið í þessari umræðu fjárlaga sem hefur átt sér stað, m.a. talað um að þetta sé allt of eftirspurnarhvetjandi. En sömu aðilar, þar á meðal formaður Sjálfstæðisflokksins, seðlabankastjóri, hvetja fólk til að færa sig yfir í verðtryggingu, sem er ekkert annað en ígildi þess að forðast það vaxtastig sem nú þegar er til staðar en rýrir eiginfjárstöðu fólks og skapar vanda síðar í framtíðinni. Það er ekki hægt að segja eitt og gera annað. Staðan er mjög slæm hjá ákveðnum hópi fólks í dag. Vaxtabótakerfið nær bara til eins tekjulægsta fólksins í landinu með þyngstu greiðslubyrðina. Við erum ekki að tala um bætur fyrir fólk sem hefur borð fyrir báru þessa dagana. — Ég segi já.