fjárlög 2024.
Virðulegur forseti. Hér erum við að greiða atkvæði um mjög hóflega hækkun á fjárheimild til húsaleigubóta. Staðan er sú að leiguverð hefur hækkað á árinu um 4% samkvæmt opinberri leiguverðsvísitölu, sem við vitum að nær ekki til alls markaðarins, á sama tíma og fjárheimildir eru að rýrna á milli ára um 500 millj. kr. eða hálfan milljarð. Húsnæðisbætur stóðu óbreyttar frá árinu 2017 þar til á miðju ári í fyrra og við fögnum því í Samfylkingunni að þær hafi verið hækkaðar. En frá þessu tímabili hafa sem sagt þessar bætur hækkað um 21% en leiguverð um 30%. Við vitum öll að þeir sem eru á leigumarkaði eru að greiða hvað hæsta hlutfall ráðstöfunartekna sinna út af greiðslubyrði húsnæðis og þetta er fólkið sem er að finna hvað harðast fyrir hækkun á nauðsynjavöru í dag. Er ekki til milljarður hér inni til að fjármagna stöðu þessara einstaklinga, þar sem við erum að fara inn í kjarasamninga þar sem stór hluti af útgjöldum ríkisins á næsta ári mun vera vegna launahækkana og verðlagsbóta? Ég velti því fyrir mér hvort fólk átti sig á samhengi hlutanna sem er að eiga sér stað í þessum sal. (Gripið fram í.)