154. löggjafarþing — 46. fundur,  8. des. 2023.

fjárlög 2024.

1. mál
[17:59]
Horfa

Valgerður Árnadóttir (P):

Forseti. Við leggjum hér til 50 millj. kr. framlag til Samtakanna '78. Þau sinna gríðarlega mikilvægu fræðslustarfi, félagsstarfi og stuðningsstarfi við hinsegin samfélagið og í því bakslagi sem þau hafa upplifað þessa dagana er mjög mikilvægt að við hér inni og öll þjóðin styðjum þau. — Ég segi já.