fjárlög 2024.
Frú forseti. Ég get í sjálfu sér alveg tekið undir að það hafi tekist óhönduglega til með sölu á ríkiseignum að undanförnu og ég get alveg tekið undir það að stærsti flokkurinn í ríkisstjórn, sá sem er lengst til hægri, nýtur ekki mikils trausts í samfélaginu þegar kemur að þessu. Það er engu að síður mjög brýnt að hafa þessa heimild inni, það er engu að síður mjög brýnt að reyna að búa þannig um hnútana að það sé hægt að halda áfram að losa um eignarhald ríkisins á fjármálafyrirtækjum og eins einkennilegt og það er að segja hér í þessum sal þá er það þannig að það færi sennilega best á því að vinstri sinnaðasti flokkurinn í ríkisstjórninni sæi frekar um þessar eignasölur í framtíðinni. En ég bind vonir við að við náum einhverri lendingu um (Gripið fram í.) að gera þetta skynsamlega í framhaldinu og bendi á að þetta eru umtalsverðar fjárhæðir fyrir ríkissjóð sem við eigum í fjármálakerfinu. Þær ætti að sjálfsögðu síðan að nýta annaðhvort til þess að greiða niður skuldir eða til afmarkaðrar innviðauppbyggingar.