nýr meiri hluti til að takast á við verkefnin í samfélaginu.
Virðulegi forseti. Þungavigtarþingmaður úr röðum Sjálfstæðisflokksins, hv. þm. Jón Gunnarsson, var svona ljómandi léttur í morgun í Bítinu og segir ríkisstjórnina standa á brauðfótum. Það eru alvarlegir brestir, segir hann, í þessari ríkisstjórn og það sé ákveðin stöðnun í kerfinu og það blasi við öllum. Svo var hann spurður hvort hann væri pirraður á stjórnarsamstarfinu. Já, segir hann, og segist horfa á þessi verkefni sem þurfi að leysa og hann treysti ekki þessari ríkisstjórn til að leysa þau, það sé bara staðan og allir geti sagt sér það sem fylgist með pólitík. Ekkert nýtt hjá Jóni, ég er algerlega sammála honum. Þessi ríkisstjórn mun ekki leysa stóru verkefnin sem þarf að leysa fyrir heimilin og fjölskyldurnar í landinu. Staðan er sú núna að þessi ríkisstjórn ógnar öryggi fólksins í landinu. Það er verið að tala um að það þurfi hugsanlega að skerða rafmagn. Það þarf að setja hér neyðarlög, allt í einu er þessi ríkisstjórn orðin að skömmtunarstjórn. Það þarf að setja neyðarlög um að heimilin í landinu hafi forgang af því að hún hefur ekki sinnt hlutverki sínu síðastliðin sex ár. En leikur ríkisstjórnarinnar er alltaf sá sami. Ótal mikilvæg mál sem ríkisstjórnin þarf að leysa en hennar leikur er sá sami, allt sem þau geta ekki komið sér saman um er látið kyrrt liggja. Kyrrstaðan er frekar valin heldur en framfarir. En hvað þýðir það? Það þýðir vanræksla. Vanrækslan blasir við til að mynda í orkumálum.
Ég vil spyrja hæstv. ráðherra því eins og hv. þm. Jón Gunnarsson segir er óeiningu og ákvarðanaleysi hjá ríkisstjórninni og það er á ábyrgð ríkisstjórnarinnar að neyðarástand er að skapast: Er hæstv. ráðherra tilbúinn til að gera það sem hv. þm. Jón Gunnarsson lagði til, að mynda nýjan meiri hluta hér í þinginu, fram hjá ríkisstjórninni, til þess að leysa þessi stóru verkefni fyrir samfélagið núna? (Forseti hringir.) Við þurfum að leysa þau núna. Þetta gerir hv. þm. Jón Gunnarsson sér grein fyrir. Hann telur að það þurfi að mynda nýjan meiri hluta. (Forseti hringir.) Er hæstv. ráðherra tilbúinn til að fara í þann leiðangur að mynda nýjan meiri hluta til að koma okkur af stað og tryggja öryggi heimilanna í landinu?