154. löggjafarþing — 47. fundur,  11. des. 2023.

sérlög um tiltekna virkjunarkosti.

[15:25]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Virðulegur forseti. Í dag erum við öll Jón Gunnarsson. Það liggur nú fyrir þinginu frumvarp að neyðarlögum um skömmtunarstjóra raforku sem er ætlað til að tryggja að ljósin kvikni í stofum landsins og á heimilum landsmanna. Hv. þm. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir fór inn á margt af því sem ég ætlaði að koma inn á í fyrirspurn minni þannig að ég ætla að stytta hana og spyrja hæstv. ráðherra hreint út: Kemur til greina að mati ráðherra að setja sérlög um tiltekna virkjunarkosti?