sérlög um tiltekna virkjunarkosti.
Herra forseti. Ég held að ég hafi aldrei verið meira hissa á því að fá ekki svar við spurningu minni heldur en núna í ljósi þess að spurningin var eins stutt og skorinorð og hægt er að hafa hana held ég. Þannig að ég bara ítreka spurningu mína til hæstv. ráðherra: Kemur til greina að mati ráðherra að setja sérlög um tiltekna virkjunarkosti? Því til viðbótar vil ég spyrja hæstv. ráðherra: Hvaða mál eru það sem snerta núverandi stöðu í orkumálum, þann raforkuskort sem yfirvofandi er og fyrirsjáanlegur, sem ráðherra hefur farið með inn í ríkisstjórn og hafa verið stoppuð þar?