niðurfelling ívilnunar vegna kaupa á rafbílum.
Virðulegi forseti. Það er ekki hægt annað en að gera nokkrar athugasemdir við þessa ágætu fyrirspurn. Engar aðgerðir. Þessi hv. þingmaður sem talar alla jafna um loftslagsaðgerðir og mikilvægi þeirra reyndi að koma í veg fyrir það að stærsta loftslagsaðgerðin yrði að lögum. Það er bara þannig. Það er kominn tími til að þeir sem tala fyrir loftslagsmálum átti sig á út á hvað það gengur. Það gengur út á það að taka út jarðefnaeldsneyti og setja græna orku í staðinn. Það eru allir í Dúbaí sem átta sig á því. Hér kemur hv. þingmaður, ásamt hv. þingmönnum Pírata og Samfylkingar sem alla jafna að tala um mikilvægi þess að fara í loftslagsaðgerðir, og þegar koma stórar loftslagsaðgerðir segir hann bara: Nei. Nei. Við segjum nei.
Virðulegu forseti. Það er búið að gera margt hér í loftslagsmálum en það er ekki hægt að þakka hv. þingmanni og Pírötum fyrir það vegna þess að þeir reyndu að koma í veg fyrir það. Síðan er talað hér um það, virðulegi forseti, að ef einhver sparnaður næst í ríkissjóði þá sé verið að stinga undan. Það er verið að stinga undan. Ég vil bara vekja athygli á því að það sem hér er á ferðinni, og það er ótrúlegt að kjörinn fulltrúi átti sig ekki á því, er að við erum að reka ríkissjóð með halla. Hvað þýðir það? Við erum að senda reikning á börnin okkar. Það er ekki bannað að spara í ríkisrekstri, það er ekki bannað. Það lá alltaf fyrir að það sem við erum að gera, hvort sem það er rafbílavæðing eða rafhjól eða hvað það er, er allt saman tímabundið. Það er alveg hreint og klárt. Það verður líka að vera sjálfbærni í efnahagsmálum. Og af því að hv. þingmaður kalli eftir réttlátum umskiptum þá hlýtur hann að fagna nýju fyrirkomulagi. En hann gleymdi að minnast á það.