niðurfelling ívilnunar vegna kaupa á rafbílum.
Herra forseti. Talandi um að gleyma að minnast á hluti þá gleymdi hæstv. ráðherra í öllum æsingnum að svara spurningunni. Aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar lýsir sér t.d. í því að aðgerðaáætlun í loftslagsmálum var síðast uppfærð árið 2020, í tíð síðustu ríkisstjórnar og á grundvelli eldri skuldbindinga ríkisins í loftslagsmálum. Handbókin sem hæstv. ráðherra er að spila eftir er því úrelt en þar að auki er hann hættur að spila eftir henni vegna þess að ein af aðgerðunum í þeirri áætlun var einmitt að styðja við virka samgöngumáta; ívilnanir til rafmagnshjóla og reiðhjóla. Þetta er hæstv. ráðherra að fella niður til að jafna stöðu ríkissjóðs. Það fara 350 milljónir í þetta á ári. (Umhvrh.: 650.) Bjargar það ríkissjóði? Á móti er hæstv. ráðherra að skera niður framlag til orkuskipta í vegasamgöngum um 6,1 milljarð og leggja notkunargjöld (Forseti hringir.) á rafbíla upp á 7,5 milljarða. (Forseti hringir.) Hvað er þetta samanlagt, 12 milljarðar sem hæstv. ráðherra er að hægja á (Forseti hringir.) grænum umskiptum í landinu fyrir? (Forseti hringir.) Er það ekki reikningur á börnin líka? Er það ekki eitthvað sem næstu kynslóðir þurfa að borga?