154. löggjafarþing — 47. fundur,  11. des. 2023.

póstþjónusta.

181. mál
[16:15]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta um.- og samgn. (Andrés Ingi Jónsson) (P):

Frú forseti. Ég geri hér grein fyrir áliti 1. minni hluta umhverfis- og samgöngunefndar en auk þess sem hér stendur þá skrifar undir það hv. þm. Þórunn Sveinbjarnardóttir, fulltrúi Samfylkingarinnar í nefndinni.

Ég veit ekki alveg hvernig á að lýsa þessu nefndaráliti sem við leggjum hér fram. Þetta er kannski söguleg samantekt á handvömm ráðuneytis. Ég fæ að gera grein fyrir því stuttlega.

Eins og fram kom var þetta frumvarp fyrst lagt fram á 153. löggjafarþingi en þá kom skýrt fram í umsögn ÖBÍ réttindasamtaka að ekkert samráð hefði verið haft við samtökin þó svo að ákvæði frumvarpsins snerti með beinum hætti aðgengi að grunnþjónustu. Það sætti því nokkurri furðu að málið hafi verið lagt fram óbreytt á þessu þingi, sem sagt að frekar en að nýta tímann á milli þinga til að uppfylla samráðsskyldu sína samkvæmt samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks hafi ráðuneytið kosið að skila málinu aftur ófrágengnu til Alþingis.

Fyrsti minni hluti nefndarinnar telur þessi vinnubrögð ámælisverð en fagnar því að ráðuneytið hafi séð að sér og lagt til að 2. gr. frumvarpsins falli brott í ljósi þessa samráðsleysis. Þá tillögu gerir meiri hlutinn að sinni og hún er skynsamleg. En það hlýtur að teljast harla óvenjulegt að ráðuneytið geri sjálft sig afturreka með mál á grundvelli slælegra vinnubragða.

Svo að við förum aðeins yfir efni þess ákvæðis sem meiri hlutinn leggur til að fella brott að tillögu ráðuneytisins þá er með 2. gr. frumvarpsins lagt til að alþjónustuveitanda verði heimilt að setja upp bréfakassasamstæður fyrir alla móttakendur póstsendinga í þéttbýli. Þar með geti alþjónustuveitandi hætt að bera út póst á heimili fólks. Aðgengi allra að slíkum bréfakassasamstæðum er engan veginn sjálfgefið, hvort sem það er vegna líkamlegrar getu, vegalengdar eða ástands gatna. Þetta virðast frumvarpshöfundar reyndar vera meðvitaðir um enda segir í greinargerð að koma þurfi til móts við þá aðila sem ekki geta sótt póstinn sinn af einhverjum ástæðum, t.d. sökum fötlunar, aldurs eða veikinda.

Við umfjöllun málsins kom hins vegar fram, og hér erum við að tala um síðasta vetur, að ráðuneytið hefði ekki á nokkurn hátt skoðað hvernig hægt væri að útfæra þetta með þeim reglugerðarheimildum sem fyrir liggja. ÖBÍ réttindasamtök benda á í umsögn sinni að að gefnu tilefni — og ég held að við þurfum ekkert að fjölyrða það, tilefnið er það að sjónarmið fatlaðs fólks eru bara almennt hunsuð þegar reglur eru smíðaðar, eru í besta falli í eftiráathugun — megi efast um að slík útfærsla í reglugerð virki vel í reynd, enda sé þá um að ræða viðbót sem ekki hafi verið hugsuð frá upphafi.

Fyrsti minni hluti tekur undir þetta og bendir á að viðhorf ráðuneytisins endurspegli í rauninni grundvallarmisskilning á hugmyndafræði algildrar hönnunar sem ætti að vera kjarninn í öllum breytingum á grunnkerfum samfélagsins. Þar er lykilatriði að hanna allar kerfisbreytingar frá upphafi út frá aðstæðum viðkvæmustu hópanna til að tryggja að þær bitni ekki á þeim þegar á hólminn er komið. Allt samfélagið græðir á því vegna þess að kerfi sem nær utan um þarfir viðkvæmasta hópsins gagnast öllum í samfélaginu betur.

Svo er kannski rétt að nefna fordæmin sem koma upp í hugann í þessu samhengi. Þar er í fyrsta lagi hægt að nefna pakkasamstæðurnar sem hafa sprottið upp víða í þéttbýli á undanförnum misserum. Þar er nánast aldrei haft eitthvert samráð við hagsmunasamtök fatlaðs fólks varðandi staðsetningu eða útfærslu. Sama máli gegnir um tilraunaverkefni varðandi dreifingu pósts í gegnum bréfakassasamstæður á Kópaskeri sem fór í gang fyrr á árinu. Það fór í gang án þess að símtólið hefði verið tekið upp til að ná sambandi við ÖBÍ.

Svo er kannski rétt að nefna í framhjáhlaupi að Póstinn vantar ekkert sérstaklega þessa heimild ef eitthvað er að marka umfjöllun nefndarinnar. Þessi heimild er til að bregðast við aðstæðum á póstmarkaði sem eru ekki fyrir hendi lengur. Það hefði mögulega verið gagnlegt fyrir póstinn, og til sparnaðar og einföldunar og hvað það er, ef þessi heimild hefði komið inn fyrir tíu árum en eins og staða póstmagns er í dag þá er hverfandi þörf á bréfakassasamstæðum. Uppsetning þeirra myndi væntanlega vera það umfangsmikið og dýrt verkefni að það myndi tæpast svara kostnaði.

Svo gerðist það, eftir að ráðuneytið hafði komið á tveimur löggjafarþingum fyrir nefndina og fengið þau skýru skilaboð að okkur þætti ekki ásættanlegt að engin samtöl hefðu átt sér stað við ÖBÍ við vinnslu málsins, að hinn 7. nóvember fór innviðaráðuneytið sjálft þess á leit við nefndina að hún hraðaði afgreiðslu málsins enda væri farið að styttast í að Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, stigi formleg skref vegna tafa við innleiðingar á tveimur reglugerðum sem setja á lagastoð fyrir í 3. og 4. gr. frumvarpsins, sem sagt öðrum greinum en þeirri sem fjallar um bréfakassasamstæðurnar. Til að svo mætti verða lagði ráðuneytið til að 2. gr. frumvarpsins yrði einfaldlega felld brott þar sem í ljós kom að nauðsynleg reglusetning er tímafrek og útfærslan flóknari en vonir ráðuneytisins stóðu til. Þá uppgötvun gerði ráðuneytið þegar það settist loks til fundar með fulltrúum frá ÖBÍ réttindasamtökum mörgum mánuðum eftir að bent var á þennan annmarka í fyrsta sinn.

Fyrsti minni hluti lýsir ánægju með að ráðuneytið hafi loks tekið upp samráð við ÖBÍ en ítrekar að það hefði að sjálfsögðu átt að eiga sér stað strax við upphaf vinnslu málsins. Beinir 1. minni hluti því til ráðuneytisins að taka til endurskoðunar verklag við vinnslu þingmála þannig að mistök af þessu tagi endurtaki sig ekki. Þegar kemur að aðgengi fatlaðs fólks að grunnþjónustu getur ráðuneytið ekki látið undir höfuð leggjast að kanna hver áhrif lagasetningarinnar eru og hvernig er hægt að tryggja að ekki sé gengið á réttindi fatlaðs fólks.