154. löggjafarþing — 47. fundur,  11. des. 2023.

skipulagslög.

183. mál
[16:34]
Horfa

Frsm. meiri hluta um.- og samgn. (Orri Páll Jóhannsson) (Vg):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Andrési Inga Jónssyni fyrir þessa umræðu. Við eigum jú báðir sæti í umhverfis- og samgöngunefnd þar sem við vorum að ræða þetta mál og höfum verið að ræða þetta mál og ekki bara á þessu haustþingi heldur líka síðastliðið vor.

Ég kom aðallega upp til að orðlengja örlítið betur það sem við segjum í nefndaráliti okkar í meiri hlutanum — hv. þingmaður talar auðvitað fyrir nefndaráliti 1. minni hluta — sér í lagi varðandi tvennt. Í fyrsta lagi er það ákvæðið varðandi 25% eða allt að fjórðungi heildarfermetrafjölda sem sannarlega er lagt upp með að sé heimildarákvæði og undir þá tillögu tekur nefndin eftir töluvert miklar umræður, á móti því að gera það að skylduákvæði en með réttu vildu nokkrir umsagnaraðilar sem sendu okkur umsögn um málið gera það að skyldu. Ég tek um margt undir sjónarmið hv. þingmanns í þessu og þetta ræddum við í nefndinni. En yfir það er farið í nefndaráliti meiri hlutans að það að skylda sveitarfélögin til þessa samræmist ekki sjónarmiðum um sjálfstjórn sveitarfélaganna og skipulagsvald þeirra, samanber stjórnarskrána.

Gott og vel. Þá kynni einhver að segja: Hvernig ætlum við þá að ná þessum árangri? Hvernig náum við þá þessum markmiðum með því að samþykkja þetta heimildarákvæði? Eins og kom fram í framsögu minni áðan snýst frumvarpið um heimild sveitarfélaga til að leggja upp með fjórðung heildarfermetrafjölda, þ.e. fermetrafjöldinn er undir í því, á meðan rammasamningur ríkis og sveitarfélaga, sem hv. þingmaður kom inn á, um aukið framboð íbúða 2023–2032 og sameiginlega sýn og stefnu í húsnæðismálum, sem undirritaður var 12. júlí 2022, ávarpar ekki bara fjölda íbúða í þúsundum heldur sérstök prósentumarkmið. Með leyfi forseta, ætla ég að fá að lesa 3. gr. b sem fjallar um framboð íbúða á viðráðanlegu verði, sem á akkúrat við um það frumvarp sem við erum að ræða hér:

„Aðilar samnings þessa eru sammála um nauðsyn þess að leggja sérstaka áherslu á uppbyggingu hagkvæmra íbúða á viðráðanlegu verði og að hlutfall þeirra verði að jafnaði um 30% nýrra íbúða.“

Þarna liggur kannski munurinn, virðulegi forseti. Annars vegar í frumvarpinu hér, sem fjallar um heimildarákvæði, erum við að tala um allt að 25% heildarfermetrafjölda á meðan hitt fjallar um nýjar íbúðir. Svo að ég haldi áfram að lesa úr 3. gr. um helstu samningsmarkmið rammasamningsins téða, með leyfi forseta:

„Mæta þarf hækkun húsnæðisverðs og veikri stöðu leigjenda og fyrstu kaupenda með því að auka aðgengi að hagkvæmu húsnæði á viðráðanlegu verði fyrir tekju- og eignalægri. Hagkvæmar íbúðir á viðráðanlegu verði geta m.a. verið íbúðir innan almenna húsnæðiskerfisins, hlutdeildarlánaíbúðir og aðrar íbúðir sem njóta einhvers konar stuðnings stjórnvalda og er ætlað að leysa úr húsnæðisþörf tekju- og eignalægri hópa, þar með talið námsmanna, ungs fólks, fyrstu kaupenda, öryrkja og eldra fólks.

Aðilar eru jafnframt sammála um að á samningstímanum verði félagsleg húsnæðisúrræði að jafnaði sem næst 5% af öllu nýju húsnæði.“ — Enn erum við að tala um prósentutölur í samhengi húsnæðis. — „Með félagslegu húsnæðisúrræði er átt við íbúðir sem sveitarfélagi ber lagaleg skylda til að útvega einstaklingum eða fjölskyldum sem ekki eru á annan hátt færir um að sjá sér fyrir húsnæði sökum lágra launa, þungrar framfærslubyrði eða annarra félagslegra aðstæðna.“

Virðulegur forseti. Ástæðan fyrir því að ég vildi draga þetta sérstaklega upp er að ég held að í eðli sínu sé nauðsynlegt að það komi fram að rammasamningurinn var undirritaður 12. júlí 2022 og eftir því sem ég næst kemst eru tvö sveitarfélög sem eru að vinna eftir honum — og þau mættu sannarlega vera fleiri, ég held að ég og hv. þm. Andrés Ingi Jónsson séum sammála um það, sér í lagi vegna þess að þau hafa undirgengist þessi viðmið — tvö sveitarfélög sem hafa unnið á grundvelli hans síðan hann var undirritaður. Það er annars vegar Reykjavíkurborg og hins vegar Mýrdalshreppur. Ég held að ég sé að hafa þetta algjörlega hárrétt eftir, virðulegi forseti. Þessu hafa sveitarfélögin engu að síður náð að vinna að og hafa getað undirgengist samningsmarkmiðin án þess að það væri sérstakt heimildarákvæði, eða skylduákvæði eins og hv. þingmaður leggur til í sinni breytingartillögu, í núgildandi skipulags- og byggingarlöggjöf. Þá má spyrja sig: Hvernig fara þau að því? Jú, það gera þau vegna þess að þau gera þetta á grundvelli svokallaðra einkaréttarlegra samninga. Það er ekkert í þessu frumvarpi sem kveður á um að sveitarfélögum sé meinað að gera frekari einkaréttarlega samninga umfram þessi 25%. Í meðförum málsins kom fram að dæmi séu um að einstaka sveitarfélög hafi á einstaka reitum farið upp fyrir prósentuhlutföllin en þá einmitt á grundvelli einkaréttarlegra samninga. Er það vel, virðulegur forseti, því að með því náum við þeim markmiðum sem koma m.a. fram í rammasamningi ríkis og sveitarfélaga þótt sannarlega telji ég að 25% heimildaákvæði, varanlegt inn í skipulagslöggjöfina, muni liðka fyrir og hjálpa til við þessa mikilvægu vinnu inn í framtíðina.

Ég vildi bara koma þessu að, virðulegi forseti.