skipulagslög.
Frú forseti. Hér er lagt til að gera ágætt mál betra með því að lögfesta til bráðabirgða þau tölulegu viðmið sem er að finna í rammasamningi milli ríkis og sveitarfélaga um að auka framboð íbúða á tímabilinu 2023–2032, þó með undankomuleið fyrir þau sveitarfélög sem ekki telja sér kleift að standa undir þeim viðmiðum. Þannig að hér er ekki gengið freklega á skipulagsvald sveitarfélaganna heldur er eingöngu sett sú skylda á þau að sýna fram á að þau hafi alla vega reynt að uppfylla samkomulag sem þau gerðu við ríkið. Það er nú skrýtið að meiri hluti þings virðist ekki vera til í að láta fólk standa við gefin loforð en svona er fólk víst stundum.