154. löggjafarþing — 48. fundur,  12. des. 2023.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2024.

2. mál
[14:56]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Þær eru áhugaverðar tillögurnar hjá meiri hlutanum, enn og aftur, varðandi sóknargjöldin. Ég velti fyrir mér: Af hverju er ekki búið að afnema þennan útúrdúr, hvernig við innheimtum félagsgjöld fyrir trúar- og lífsskoðunarfélög í gegnum ríkissjóð? Það er ekkert svo mörg ár síðan þetta var afnumið gagnvart Bændasamtökunum, minnir mig. Félagsgjöld fyrir Bændasamtökin voru einmitt innheimt í gegnum ríkissjóð, svo var það tekið burt og Bændasamtökin þurfa bara að innheimta þau sjálf. Ég veit ekki af hverju við gerum þetta ekki líka fyrir trúar- og lífsskoðunarfélög. Þá þurfum við ekki að vera að vesenast í því á hverju ári að uppfæra einhverja krónutölu í lögum, þetta er of mikil vinna að sjá um og kemur dálítið í veg fyrir að trúar- og lífsskoðunarfélög geti haft t.d. lægri félagsgjöld en hér er boðið upp á eða þess vegna hærri eða hvernig sem það er.