breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2024.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ef maður á að stilla upp þeim bótakerfum sem við höfum í okkar velferðarkerfi og segja hvaða kerfi er best til þess að ná árangri, til þess að við náum utan um fólk sem er í þörf og þarf að rétta hjálparhönd, þá er vaxtabótakerfið ekki eitt þeirra kerfa sem kemst ofarlega á lista yfir gott og skilvirkt velferðar- og félagslegt bótakerfi. Þetta er kerfi eins og við þekkjum sem veitir ákveðna niðurgreiðslu á skuldum til tiltekins þjóðfélagshóps og þarna hefur hv. þingmaður farið yfir ýmiss konar viðmið og hvað sé rétt að miða við. Ég vil bara draga fram aðalatriðið sem snýr að vaxtabótakerfinu. Þróunin hefur verið sú undanfarin ár þegar kemur að húsnæðisstuðningi til efnaminni einstaklinga að það hefur verið nokkuð víðtæk samstaða um það í samfélaginu um að fara aðrar leiðir, svo sem með almenna íbúðakerfinu, húsnæðisbótum, séreignarsparnaði og öðrum ráðstöfunum eða fjármögnun á félagslegum íbúðakerfum, til að ná betur utan um þau mál. Það sem hefur verið að gerast í vaxtabótakerfinu um þessar mundir, að þeim fækkar sem eru í því, er vegna þess að eignaverð hefur hækkað eða fólk hefur hækkað í tekjum og þá á það ekki rétt á bótum. Í sjálfu sér er það bara ágætismál að fólk er að hækka í tekjum, ráðstöfunartekjur þess eru aukast og þá minnkar þörfin fyrir stuðning hins opinbera.
En varðandi krónutölugjöldin, sem er hin spurningin sem hv. þingmaður beindi að mér, þá er það rétt sem kemur fram. Þetta er miðað við forsendur fjárlagafrumvarpsins, 3,5%, og það er prósentuhækkun sem er mun lægri en gert er ráð fyrir um verðbólgu næsta árs þannig að í raun eru þessir skattstofnar eða gjöld að rýrna að virði sem því nemur. Það er svo hægt að fara yfir það í seinna andsvari hvernig eigi að beita sköttum, hvort þeir eigi að vera það hagstjórnartæki sem stundum er látið í veðri vaka hér í þessum sal.