breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2024.
Virðulegi forseti. Nú er það svo að ég vildi óska að ekki væri þörf á vaxtabótum. Ég tel að áherslan ætti að felast í því að koma í veg fyrir að bankarnir fái að blóðmjólka heimilin og græða stórkostlega á því en ekki að ríkið komi með plástur í formi vaxtabóta og leggi út í kostnað til að bæta heimilunum skaðann sem bankarnir hafa valdið. Bankarnir eiga að greiða sjálfir fyrir skaðann sem þeir hafa valdið en ekki skattgreiðendur vegna þess að það er bara eitthvað mjög öfugsnúið við þetta kerfi. Ég held að við hv. þingmaður séu sammála um það. En að því sögðu þá eru vextirnir í dag að sliga heimilin og eitthvað verður undan að láta. Það eru fjölmörg heimili í þeirri stöðu að þetta mun bara vera það sem skilur á milli feigs og ófeigs í þessu dæmi. Og fyrst staðan er svona þá get ég ekki annað en ýtt á eftir því að fólk fái vaxtabætur og það er í rauninni þyngra en tárum taki að ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur skuli ekki hafa meiri skilning á stöðunni sem blasir við þessum 5.000 fjölskyldum sem hafa það lágar tekjur og skulda svo mikið að þær hefðu átt rétt á vaxtabótum áður en vextir fóru að hækka. En þær munu ekki fá þær þegar vextir hafa hækkað svo að afborgun af skuldabréfinu hefur aukist um tugi og hundruð þúsunda í hverjum einasta mánuði. Það gengur ekki alveg upp. Það er út af því að verðmat á íbúðunum þeirra hefur hækkað á pappír þó að ráðstöfunartekjur þeirra séu þau sömu og áður. Það að svipta þetta fólk vaxtabótum heitir einfaldlega að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur, hvað sem okkur að öðru leyti kann að finnast um vaxtabætur.
Hvað varðar krónutöluskattana þá getur vel verið að hækkunin sé undir verðbólguviðmiði og eitthvað þess háttar en þetta er samt sem áður verðbólguhvetjandi og kemur beint inn í mjög alvarlegt ástand sem, eins og ég segi, ráðherrar hafa ítrekað sagt að sé þeirra mikilvægasta verkefni að ná tökum á. Þetta er ekki gott innlegg í það.