breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2024.
Frú forseti. Þannig er með krónutöluviðmiðið að þessi hækkun um 3,5% er 1 prósentustigi yfir verðbólgumarkmiði sem er 2,5% og það má velta því fyrir sér hvort stilla hefði átt krónutöluviðmiðið í 2,5%. Það er ekki sú ákvörðun sem hér liggur fyrir enda er verið að horfa til þess að við erum enn þá að kljást við því miður of háa verðbólgu og afleiðingin af því er að Seðlabankinn hefur hækkað vexti allhressilega. Það er áhyggjuefni og ég tek undir með hv. þingmanni að þetta háa vaxtastig í landinu er að bíta almenning og fyrirtæki landsins og við verðum að horfa til þeirra aðgerða sem hægt er að fara í til þess að ná vöxtunum niður. Það er alveg ljóst hvað það felur í sér. Það felur í sér að við eyðum ekki um efni fram. Við reynum þannig að draga úr peningamagni í umferð svo að ekki fylgi sú verðbólga. Það eru jafnframt ráðstafanir hér í ríkisfjármálunum sem skipta máli og ég tel fjárlagafrumvarpið fyrir 2024 vera akkúrat mikilvægan þáttur í því. Þetta eru aðhaldssöm fjárlög. Það er líka þannig, eins og Seðlabankinn hefur ítrekað bent á, í ljósi þess hversu stóran hluta launagreiðslur taka í þjóðfélaginu, að laun og launahækkanir og kjarasamningar um launahækkanir hafa gríðarlega mikil áhrif. Það er það sem stendur út af komandi vetri, hvernig þar tekst til, að við náum samkomulagi um það hvað er til skiptanna í þessu þjóðfélagi og hvernig því er ráðstafað í réttlátar launahækkanir til fólks. Þetta eru lykilbreyturnar í því að ná niður vaxtastiginu ef við ætlum að taka mark á því sem Seðlabankinn er að segja.